Íranskur sjónvarpsstjóri skotinn til bana í Istanbúl Kjartan Kjartansson skrifar 30. apríl 2017 14:25 Frá Istanbúl þar sem íranskur sjónvarpsstjóri var myrtur í gærkvöldi. Vísir/Getty
Vopnaðir menn skutu Saeed Karimian, stofnanda og stjórnarformann íranskrar sjónvarpsstöðvar, til bana í Istanbúl í gærkvöldi ásamt viðskiptafélaga hans frá Kúvaít. Karimian var dæmdur í sex ára fangelsi í Íran fyrir að dreifa áróðri gegn landinu að honum fjarstöddum. Karimian, stofnandi Gem TV, var skotinn til bana í Maslak-hverfinu í Istanbúl. Vitni segja að byssumennirnir hafi verið grímuklæddir. Skutu þeir á bíl sem Karimian og viðskiptafélagi hans voru í. Karimian lést á staðnum en viðskiptafélaginn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Bíll sem byssumennirnir eru taldir hafa verið á fannst síðar brunninn til kaldra kola. Gem TV talsetur vestræna og aðra erlenda þætti á persnesku og sendir út í Íran. Þarlend stjórnvöld hafa deilt á stöðina fyrir að senda út efni sem þau telja að stríði gegn íslömskum gildum og dreifi vestrænni menningu. BBC hefur eftir ættingjum Karimian að írönsk stjórnvöld hafi hótað honum undanfarna þrjá mánuði. Af þeim sökum hafi hann ætlað að flytja til London frá Istanbúl. Heimildir BBC innan tyrkneska stjórnkerfisins herma aftur á móti að Karimian gætu hafa verið myrtur vegna viðskipta eða glæpastarfsemi.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira