Heilsugæslan gerir athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. apríl 2017 12:48 Í frétt á vef heilsugæslunnar segir ábendingar Ríkisendurskoðunar séu teknar alvarlega en það sé þó mat stjórnenda HH að Ríkisendurskoðun hefði mátt kynna sér málin betur. Vísir/Stefán
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) gerir nokkrar athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar um heilsugæsluna en skýrslan var kynnt í vikunni. Í frétt á vef heilsugæslunnar segir ábendingar Ríkisendurskoðunar séu teknar alvarlega en það sé þó mat stjórnenda HH að Ríkisendurskoðun hefði mátt kynna sér málin betur. Segir að í skýrslunni sé að finna ályktanir sem eigi ekki við rök að styðjast og upplýsingar sem séu úreltar og eigi ekki lengur við.Eitt af því sem fjallað er um í skýrslunni er samskiptavandi innan HH en velferðarráðuneytið hefur ítrekað verið upplýst um þessi vandamál frá árinu 2011 samkvæmt skýrslunni. Ráðuneytið hafi hins vegar ekki gert neitt til að leysa hann en í apríl 2011 lýstu þáverandi yfirlæknar heilsugæslustöðvanna vantrausti á Svanhvíti Jakobsdóttur, forstjóra HH. Í athugasemdum heilsugæslunnar um skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að innan yfirstjórnar HH líti menn svo á að samskiptavandinn sé hluti af fortíðinni. „HH hefur farið í gegnum miklar skipulagsbreytingar síðustu misseri og við slíkar aðstæður geta eðli málsins samkvæmt verið uppi mismunandi skoðanir á þeim faglegu áherslum sem leggja ber til grundvallar hverju sinni. Slíkur skoðanamunur var vissulega til staðar um tíma innan yfirstjórnar HH en er ekki lengur fyrir hendi og því vart þörf á aðkomu velferðarráðuneytisins vegna þessa. Núverandi stjórnendur eru sannfærðir um að skjólstæðingar heilsugæslunnar eigi eftir að njóta góðs af þeim breytingum sem unnið er að innan HH,“ segir á vef heilsugæslunnar. Þá gerir HH einnig athugasemdir við að Ríkisendurskoðun geri athugasemdir við að bent sé á hættu á hagsmunaárekstrum þegar læknar hjá HH starfa einnig á Læknavaktinni ehf.: „Í þessu sambandi er rétt að rifja upp að þetta fyrirkomulag var ákveðið af stjórnvöldum og hafa Sjúkratryggingar Íslands, í umboði velferðaráðuneytis, samið við einkafyrirtækið Læknavaktina um að sinna þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins eftir kl. 17:00 á daginn og um helgar. Þess má geta að þjónustutími heilsugæslustöðva HH er frá klukkan 8:00 til kl. 18:00 alla virka daga. Þjónusta Læknavaktarinnar er til kl. 23:00 alla daga og um helgar skv. fyrrgreindum samningi. Það er því beinlínis hluti af heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu að hafa læknavakt opna á þeim tíma sem heilsugæslan er ekki opin og er vandséð hvernig þeirri þjónustu verði sinnt án aðkomu lækna HH. RE gerir einnig athugasemd við sérstakt helgunarálag sem læknar hafi fengið fyrir að sinna ekki launuðu aukastarfi og bendir á að dæmi séu um að læknar fái helgunarálag þrátt fyrir að gegna jafnframt störfum hjá Læknavaktinni. Hér er rétt að benda á að helgunarálag er hluti af kjarasamningi Læknafélags Íslands við fjármálaráðuneytið og hefur verið hluti af launakjörum lækna í hartnær 20 ár. Ekki verður séð að HH geti sagt upp þessu fyrirkomulagi einhliða án þess að setja heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu í uppnám.“
Tengdar fréttir Heilsugæslan stendur ekki að öllu leyti undir því að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga Í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kemur fram að Ríkisendurskoðun telji heilsugæsluna ekki standa að öllu leyti undir því markmiði laga um heiglbrigðisþjónustu að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. 24. apríl 2017 13:39 Sex ára samskiptavandi hamlar heilsugæslunni Vandi heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu er mikill. Stjórnendur talast lítið við, fjármagni er illa stýrt og hér eru færri heimilislæknar á hvern íbúa en í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. 26. apríl 2017 07:00 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira
Heilsugæslan stendur ekki að öllu leyti undir því að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga Í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kemur fram að Ríkisendurskoðun telji heilsugæsluna ekki standa að öllu leyti undir því markmiði laga um heiglbrigðisþjónustu að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. 24. apríl 2017 13:39
Sex ára samskiptavandi hamlar heilsugæslunni Vandi heilsugæslunnar á Höfuðborgarsvæðinu er mikill. Stjórnendur talast lítið við, fjármagni er illa stýrt og hér eru færri heimilislæknar á hvern íbúa en í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. 26. apríl 2017 07:00