Rukka stúlku fyrir viðgerð á vegriðinu sem varð henni að bana Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. mars 2017 16:21 Hanna Eimers var 17 ára þegar hún lést í bílslysinu í nóvember síðastliðnum. KNOX/Steven Eimers
Tennessee-ríki í Bandaríkjunum hefur sent aðstandendum 17 ára stúlku sem lést í bílslysi undir lok síðasta árs reikning upp á næstum 3000 dali, um 300 þúsund íslenskar krónur, vegna skemmda á vegriðinu sem varð henni að bana. Faðir hennar segist ekki ætla að greiða reikninginn og stefnir á að fara í hart; vegriðið hafi verið illa hannað og stórhættulegt eins og sannaðist í máli dóttur hans sem vakið hefur athygli mikla athygli vestanhafs. Slysið varð þegar stúlkan, Hanna Eimers, ók eftir hraðbraut í Tennessee þann 1. nóvember síðastliðinn. Hún missti stjórn á bílnum og hafnaði á enda vegriðsins en í stað þess að bogna undan högginu eða varpa bílnum af sér gekk vegriðið þess í stað inn í bílstjórahurðina og í Eimers sem lést samstundis. Fjórum mánuðum síðar fékk faðir hennar, Steven Eimers, fyrrnefndan reikning upp á 2.970 dali frá samgöngustofu Tennessee-ríkis vegna vinnu og efniskostnaðar við uppsetningu nýs 8 metra vegriðs.Reikningurinn voru mistök „Ég er í áfalli, þvílík ósvífni,“ sagði faðir hennar í samtali við héraðsmiðilinn Knoxville News Sentinel. „Það sem angrar mig er að þau eru að spila rússneska rúllettu með líf fólks. Þau vita að vegriðin þola illa mikinn hraða eins og í máli dóttur minnar en samt halda þau áfram að nota þau.“ Talsmaður samgöngustofunnar segir að það hafi verið mistök að senda reikninginn og að starfsmenn skammist sín mikið. Unnið sé nú að því að fjarlægja þessa tegund vegriðs sem enn er í notkun í ríkinu. Steven Eimers segist ætla að sjá til þess að það verði gert með hraði. Hér að neðan má sjá reikninginn sem Eimers fékk sendan frá samgöngustofunni.Reikningurinn upp á næstum 3000 dali.Knox
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Sjá meira