Formaður sauðfjárbænda sammála um að fækka þurfi fé Sveinn Arnarsson skrifar 3. mars 2017 07:00 35 prósent innanlandsframleiðslu fer til útflutnings. Verð á erlenda markaði er mjög lágt. vísir/stefán
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssambands sauðfjárbænda, segir stöðuna í sauðfjárrækt mjög erfiða. Hann tekur í einu og öllu undir orð framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands um mikilvægi þess að fækka fé í landinu náist ekki að selja afurðir. „Eins og staðan er núna þá eru skilyrði til sauðfjárræktar mjög erfið. Gengi krónunnar er það sterkt í dag að það hefur áhrif á allar útflutningsgreinar,“ segir Þórarinn Ingi. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, sagði í viðtali við Fréttablaðið síðastliðinn mánudag að núverandi ástand gæti ekki staðið lengi án þess að fækka þyrfti fé. „Ég er í stuttu máli sammála hverju einasta orði framkvæmdastjórans. Ef við getum ekki selt afurðina sem við erum að framleiða þá hlýtur eitthvað að láta undan,“ bætir Þórarinn Ingi við.Steinþór Skúlason forstjóri SSÁ Íslandi eru framleidd rúmlega tíu þúsund tonn af lambakjöti ár hvert. Um 6.500 tonn eru nýtt hér á innanlandsmarkaði og því eru það rúm 3.500 tonn sem flutt eru úr landi. Hins vegar er afurðaverð þannig að síðustu þrjá mánuði ársins greiddu afurðastöðvar um 200 milljónir króna með útflutningnum ef marka má orð Björns Víkings Björnssonar, forstjóra Fjallalambs. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir reiknisdæmið einfalt þegar skoðaðar eru opinberar tölur um framleiðslu, neyslu innanlands og stöðu krónunnar. „Það er ekki langt síðan betra verð fékkst fyrir afurðir erlendis en hér heima þegar krónan var veik. Núna hins vegar er staðan grafalvarleg.“ Þórarinn Ingi spáir verðfalli ef sú staða kæmi upp. „Staðan er þung nú þegar. Yrði sú raunin í næstu sláturtíð yrði erfið staða grafalvarleg.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Sjá meira