Hagsmunaskráning hæstaréttardómara: Eru í launuðum aukastörfum og eiga jarðir úti á landi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. janúar 2017 11:33 Markús Sigurbjörnsson, Viðar Már Matthíasson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Eiríkur Tómasson hæstaréttardómarar. Vísir/Ernir
Meirihluti dómara við Hæstarétt, eða sex af tíu, eru í launuðum aukastörfum samhliða dómarastarfinu. Þá eiga þrír dómarar eignarhluti í félögum og sex dómarar eiga aðrar fasteignir en til eigin nota. Þetta kemur fram í hagsmunaskráningu hæstréttardómara sem birt var á vef Hæstaréttar fyrir helgi en dómararnir ákváðu að birta skrá yfir hagsmuni sína í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um fjármál nokkurra hæstaréttardómara í desember. Þeir dómarar sem eru í launuðum aukastörfum eru Benedikt Bogason, Eiríkur Tómasson, Helgi Ingólfur Jónsson, Karl Axelsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson. Á meðal þeirra starfa sem dómararnir taka að sér eru kennsla, að vera prófdómarar og/eða seta í nefndum hins opinbera. Þá eiga þeir Benedikt, Helgi Ingólfur, Karl, Viðar Már og Þorgeir Örlygsson hluti í jörðum úti á landi en þær eru skráðar undir öðrum fasteignum en til eigin nota. Ólafur Börkur er sá sjötti sem skráir hagsmuni undir þeim lið en hann á eignarhluti í fasteignum í landi Ormsstaða í Grímsnes-og Grafningshreppi og eignarhluti í sumarbústað og sumarbústaðalandi.Valsmenn, Framari og Bliki Benedikt á svo 25 prósent af hlutafé í einkahlutafélaginu Mjóanesi, nafnverð 125.000 krónur, en um Mjóanes ehf. segir í hagsmunaskráningunni: „Hluthafar eru eigendur samnefndrar jarðar og skiptist hlutaféð eftir eignarhluta þeirra í jörðinni. Tilgangur félagsins er að fara með sameiginleg málefni vegna eignarhalds jarðarinnar.“ Viðar Már á helmingshlut í Skógræktarfélaginu Ármúla en Karl á hlutafé í Valsmönnum hf. að nafnvirði 250.000 krónur. Það félag á lóðir í Vatnsmýrinni. Hæstiréttur kvað upp dóm í júní að neyðarbrautinni skyldi lokað en rétt er að taka fram að Karl dæmdi ekki í málinu. Í kjölfar dóms Hæstaréttar seldu Valsmenn hf. tvær lóðir af átta sem opnuðust til bygginga vegna lokunar neyðarbrautarinnar. Karl er ekki eini Valsarinn í hópi hæstaréttardómara þar sem Helgi Ingólfur er einnig skráður í íþróttafélagið Val. Þá er Benedikt skráður í Fram og Ólafur Börkur í Breiðablik.
Tengdar fréttir Markús telur sig ekki hafa verið vanhæfan Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, átti í umfangsmilklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en hefur ekki vikið sæti í svokölluðum hrunnmálum. 5. desember 2016 19:04 Skráningar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara verða opinberar Frá byrjun árs 2017 verða upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara aðgengilegar á heimasíðu réttarins. 14. desember 2016 13:02 Héraðsdómarar hafa ekki rætt skráningu Hæstiréttur mun birta hagsmunatengsl dómara frá og með áramótum. Ekki er ljóst hvort eða með hvaða hætti héraðsdómarar munu fylgja í kjölfarið. 22. desember 2016 07:00 Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira
Markús telur sig ekki hafa verið vanhæfan Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, átti í umfangsmilklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en hefur ekki vikið sæti í svokölluðum hrunnmálum. 5. desember 2016 19:04
Skráningar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara verða opinberar Frá byrjun árs 2017 verða upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara aðgengilegar á heimasíðu réttarins. 14. desember 2016 13:02
Héraðsdómarar hafa ekki rætt skráningu Hæstiréttur mun birta hagsmunatengsl dómara frá og með áramótum. Ekki er ljóst hvort eða með hvaða hætti héraðsdómarar munu fylgja í kjölfarið. 22. desember 2016 07:00