Hodgson: Ennþá jafn orkumikill og fyrir fimmtíu árum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. desember 2017 06:00 Það er gaman hjá Hodgson. vísir/getty
Roy Hodgson réð sig í sitt tuttugasta þjálfarastarf þegar hann tók við liði Crystal Palace í september. Hann hefur stýrt Liverpool, Inter Milan og fjölda landsliða, nú síðast enska landsliðinu, en hann var rekinn eftir 2-1 tapið gegn Íslendingum. Þrátt fyrir það segist hann hafa sömu orkuna og viljann og þegar hann var 21. árs. „Þegar efnið er komið í æðarnar á þér er erfitt að ná því út.“ Svo lýsir Hodgson fíkninni sem fótboltaþjálfun er. Gleðin sem hellist yfir þig þegar lið þitt skorar sigurmark á lokamínútunum er einhver sem finnst ekki í neinu öðru starfi. Grá kynslóð knattspyrnustjóra hefur verið áberandi í ensku úrvalsdeildinni á síðustu misserum, með ráðningum Hodgson, Sam Allardyce og David Moyes. En það virkar. Palace hafði ekki unnið leik undir Frank de Boer en er nú komið í 16. sæti deildarinnar. Allardyce tók Everton úr fallsæti í það níunda. Jonathan Northcroft lýsir því svo í pistli sínum að það sem þessir þrír hafi komið með inn í stjórastöður sínar sé skýr stefna (e. clarity). „Þetta er mjög gott orð og ég tek þessu sem hrósi,“ sagði Hodgson við því. „En að sama skapi þá yrði ég mjög ósáttur ef ég réði mann í stjórastarf sem væri ekki með skýra stefnu. Þú þarft að vera skipulagður, vera með áhugann og stjórnunarhæfileikana og skýra mynd í huganum yfir því hvað leikmennirnir ættu að vera að gera og hvað þeir geta gert.“ Hodgson er 70 ára gamall, en segir það ekki skipta máli þegar kemur að því að ná til leikmanna sem eru mörgum áratugum yngri en hann. „Leikmennirnir ákveða sig hvað þeim finnst um þig mjög fljótt og þeim er alveg sama hvort þú sért 21 eða 71 árs. Svo vonandi lifir þú upp til eða ferð fram úr væntingum þeirra. Eini munurinn eftir því sem þú eldist er að þú þarft að hafa meira fyrir því að halda orkunni uppi.“ „Þú þarft að hugsa um þig, hættir að fara út á kvöldin heldur heldur þér í formi,“ sagði Roy Hodgson.
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira