Mikill seiðadauði orðið vegna mengunarslyssins í Andakílsá Gissur Sigurðsson skrifar 30. maí 2017 13:16 Andakílsvirkjun. wikipedia commons
Samkvæmt frumathugun sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hefur mikill seiðadauði orðið í Andakílsá vegna mengunarslyssins þar á dögunum og að það geti tekið ánna mörg ár að jafna sig. Orka náttúrunnar, sem rekur rafstöðina í ánni, vinnur að aðgerðaráætlun til að bæta mesta tjónið sem fyrst. Inntakslón Andakílsvirkjunar var tæmt um miðjan mánuðinn við mynni Skorradalsvatns sem leiddi til að mikið magn aurs flæddi niður ána. Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur hefur verið að rannsaka aðstæður í og við Andakílsá. Hann segir að til sé gróft mat á því hvað mikið set hafi borist í farveginn. Samkvæmt upplýsingum frá Orku náttúrunnar þá hafi þetta verið á milli fjögur og fimm þúsund rúmmetrar af seti sem fóru úr inntakslóninu og niður í ánna. „Það samsvarar að okkar mati milli átta og tíu þusund tonnum af seti,“ segir Sigurður Már.Nú er mér sagt að hrygningarsvæðið sé tiltölulega lítið í ánni. Fór mikið í það?„Já, það má segja að Andakílsá sé mjög stutt á, og laxasvæðið í henni – sem er að búa til seiði, þar sem lax getur hrygnt og seiði alist upp á – það er kannski ekki nema þrír kílómetrar, eða eitthvað slíkt.“Getið þið áætlað seiðadauða þarna?„Ekki nákvæmlega.“Gæti þetta þá ekki tekið mörg ár að jafna sig?„Jú, ég reikna með að þetta geti orðið nokkra ára lægð í veiði. Auðvitað á þetta eftir að koma betur í ljós. Ég veit til að mynda ekki hvað varð um árganginn sem er að fara úr núna, hvort að hann hafi náð að komast til sjávar.“Leggið þið til að öllum fiski sem veiðist í ánni í sumar verði sleppt lifandi?„Við höfum lagt til að enginn fiskur verði drepinn í sumar heldur rétt að taka mikið af fiski í klak,“ sagði Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur. Andakílsá hefur skilað um 200 löxum að meðaltali síðustu ár.
Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira