MH bar sigur úr býtum í Boxinu Anton Egilsson skrifar 11. nóvember 2017 18:23 Liðin átta sem kepptu til úrslita í Boxinu í dag. Fremstir eru liðsmenn MH sem sigruðu keppnina. Háskólinn í Reykjavík
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð fór með sigur af hólmi í Boxinu, framkvæmdakeppni framhaldsskólanna, sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík í dag. Í keppninni þurftu liðin að leysa fjölbreyttar þrautir sem reyna á verklega og bóklega þekkingu, hugvit, verklag, útsjónasemi og samvinnu þátttakenda. „Meðal þeirra þrauta sem liðin glímdu við í ár var að hanna og smíða brú úr einu kílói af spaghettíi, forrita díóðulampa fyrir þörungaræktun, smíða bíl úr gosdrykkjadósum og greina gögn úr lygamæli,” segir í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík. Átta lið frá jafnmörgum framhaldsskólum kepptu til úrslita í dag en alls 27 lið tóku þátt í undankeppni Boxsins sem haldin var nýlega í framhaldsskólum landsins. Fór svo að lokum að lið Menntaskólans úr Hamrahlíð bar sigur úr býtum en skólinn sigraði keppnina einnig í fyrra. Þá hafnaði lið Menntaskólans Í Reykjavík í öðru sæti keppninnar og lið Fjölbrautarskóla Suðurlands í því þriðja. Vinningslið MH skipuðu þeir Árni Haukur Árnason, Birkir Jóhannes Ómarsson, Davíð Sindri Pétursson, Gunnar Dofri Viðarsson og Þorsteinn Jónsson. Var þetta í sjöunda sinn sem Boxið er haldið en að keppninni standa Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra framhaldsskólanema. Markmið með Boxinu er að kynna og vekja áhuga nemenda í framhaldsskólum á verk- og tækninámi og fjölbreyttum störfum í iðnaði.
Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Erlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Fleiri fréttir Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Sjá meira