Kostnaðarþátttaka grunnskólabarna fer hæst upp í 22.300 krónur Ingvar Þór Björnsson skrifar 27. desember 2017 19:24 Velferðarvaktin hefur í hyggju að gera nýja könnun um kostnaðarþátttöku grunnskólabarna næsta sumar. Vísir/Vilhelm
Að minnsta kosti 40.859 börn, eða 94% grunnskólanemenda landsins, búa í sveitarfélögum þar sem búið er að taka ákvörðun um að afnema kostnaðarþátttöku vegna námsgagna á næsta skólaári. Velferðarvaktin fól Maskínu að gera könnun á kostnaðarþátttöku grunnskólabarna í skólagögnum í byrjun hausts. Velferðarvaktin var stofnuð að frumkvæði stjórnvalda snemma árs 2009 og er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Í kjölfar könnunarinnar hvatti Velferðarvaktin öll sveitarfélög til þess að skoða niðurstöður hennar í tengslum við gerð fjárhagsáætlana sinna fyrir næsta skólaár, 2018-2019. Könnunin leiddi í ljós að sveitarfélög sem ráku skóla fyrir um 38% grunnskólabarna landsins höfðu afnumið kostnaðarþátttöku þeirra í skólagögnum frá og með yfirstandandi skólaári. Fjölmörg sveitarfélög hafa nú bæst í hóp þeirra sem afnema kostnaðarþátttöku af þessu tagi og hafa komið þeim upplýsingum á framfæri við Velferðarvaktina eða á opinberum vettvangi. Reykavíkurborg vegur þyngst af þeim sveitarfélögum en í Reykjavík eru um 14.000 börn á grunnskólaaldri. Alls búa því nú að minnsta kosti 40.859 börn, eða 94% grunnskólanemenda landsins, í sveitarfélögum þar sem búið er að taka ákvörðun um að afnema kostnaðarþátttöku vegna námsgagna á næsta skólaári.Kostnaðarþátttakan fer hæst upp í 22.300 krónurÞau 6% barna sem eftir standa búa í sveitarfélögum sem hafa ýmist dregið úr kostnaðarþátttökunni, svöruðu ekki könnuninni, sögðust ekki hafa stefnu í málinu eða gætu ekki svarað. Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarvaktinni er kostnaðarþátttaka mjög mismunandi og fer hæst upp í 22.300 krónur.Hér er hægt að lesa skýrsluna í heild sinni.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Aðstoðar Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Sjá meira