Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2016 14:26 Johnson mætir í réttarsal ásamt unnustu sinni, Stacey Flounders. vísir/getty
Stúlkan sem Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Sunderland, braut kynferðislega gegn var mikill aðdáandi fótboltamannsins. Þetta kom fram fyrir rétti í dag. Johnson er sagður hafa misnotað aðstöðu sína og yfirburði gagnvart stúlkunni sem var nýorðin 15 ára þegar hann braut gegn henni. Stúlkan, sem hefur skiljanlega ekki verið nafngreind, er mikill stuðningsmaður Sunderland og Johnson, sem var rekinn frá félaginu í gær, var hennar átrúnaðargoð. Þannig beið hún reglulega fyrir utan Ljósvang, heimavöll Sunderland, til geta fengið myndir af sér með Johnson, auk þess sem hún átti treyju með nafninu hans aftan á. Johnson vingaðist við stúlkuna á Facebook og hitti hana svo í bíl sínum fyrir aftan kínverskan veitingastað í lok janúar í fyrra. Á þessum tíma var unnusta hans, Stacey Flounders, ófrísk að þeirra fyrsta barni. Johnson, sem var meðvitaður um aldur stúlkunnar, færði henni áritaða treyju og sagðist svo búast við að fá „þakkarkoss“ frá henni. Leikmaðurinn keyrði svo með hana á einangrað svæði þar sem hann snerti hana kynferðislega þangað til henni fór að líða illa. Skömmu eftir þetta sendi Johnson stúlkunni smáskilaboð. Samskipti þeirra voru sem hér segir: Hann: Þetta var ekki slæmt, var það? Hún: Nei, haha. Hann: Haha, næst þurfum við að færa okkur í aftursætið lol. Hún: Haha, já. Johnson á seinna að hafa sagt að fundur þeirra hafi verið „þess virði“, og bætti við: „Þetta var snilld. Ég vildi bara ná þér úr buxunum lol.“ Sem fyrr sagði rak Sunderland Johnson í gær og þá hefur Adidas sagt upp auglýsingasamningi sínum við leikmanninn sem hefur leikið 12 A-landsleiki fyrir England.
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira