Hjallastefnan óskar eftir meira fjármagni Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 17. febrúar 2016 07:00 Garðabær greiðir Hjallastefnunni í samræmi við meðalkostnað á bak við nemendur í grunnskólum bæjarins. Vísir/Vilhelm
Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar hefur ritað bæjarráði Garðabæjar bréf þar sem óskað er eftir breytingum á samningi hvað varðar fjárframlög til reksturs grunnskóla Hjallastefnunnar í bænum. „Í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefur á síðustu misserum hvað varðar starfsmat og kjarasamninga er ljóst að rekstrarskilyrði grunnskólanna eru afar erfið og þung,“ segir í bréfinu. Þar stendur ennfremur að núgildandi samkomulag byggist á rekstrarkostnaði grunnskóla í Garðabæ sem eru fjölmennir og hagkvæmir í rekstri. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, segir gamla samninginn hafa verið hagstæðan á sínum tíma en aðstæður hafi breyst. Hjallastefnan er að fara fram á að fjármögnun skólans verði með sambærilegum hætti og í öðrum sveitafélögum eða að fylgt verði eftir svokölluðu Hagstofuviðmiði. Viðmiðið gerir ráð fyrir að einkareknir grunnskólar fái að lágmarki 75 prósent af meðalframfærslu grunnskóla.Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir„Í Garðabæ þróaðist það með þeim hætti að ekki var samið um Hagstofuviðmiðið heldur er greitt samkvæmt meðalkostnaði á nemanda í grunnskóla í Garðabæ,“ segir Ingibjörg. „Þá kom það bara vel út fyrir Hjallastefnuna en síðan það gerðist hefur meðalkostnaður grunnskólanna í Garðabæ lækkað á meðan Hagstofuviðmiðið hefur hækkað.“ Þá bendir hún á að í samningnum við Garðabæ er Hjallastefnunni ekki heimilt að rukka skólagjöld en það er til dæmis heimilt í Hafnarfirði og Reykjavík. Þá kemur fram í bréfinu ósk um að Garðabær niðurgreiði einnig kostnað vegna frístundastarfs, frístundaakstur og akstur vegna íþróttaiðkunar nemenda. Þá óskar Hjallastefnan eftir því að liðir sem snúa að rekstrarkostnaði fasteigna, viðhaldi og kaupum á búnaði verði sérstaklega skoðaðir. Foreldrar barna í grunnskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ hafa sent bæjaryfirvöldum áskorun þess efnis að bærinn styðji Hjallastefnuna í að byggja sitt grunnskólastarf í bænum. Bæjarráð fjallaði um málið í gær og hefur vísað því til skólanefndar.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira