Dýrt að sækja í Vesturbæinn Sæunn Gísladóttir skrifar 12. apríl 2016 07:00
Ef leigjandi vill spara sér aurinn borgar sig að leigja í úthverfum Reykjavíkur. Gríðarlegur munur getur verið á leiguverði vestan og austan við Kringlumýrarbraut, ódýrast er að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ. Til að leigja þriggja herbergja áttatíu og fimm fermetra íbúð í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi þarf par með tvö börn að vera með 747 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Parið þarf töluvert lægri ráðstöfunartekjur til að leigja á Kjalarnesi eða í Mosfellsbæ, eða 692 þúsund krónur. Ef barnlaust par hyggst leigja tveggja herbergja sextíu fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu þarf það 502 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði til að leigja í vesturhluta Reykjavíkur, en töluvert minna eða 460 þúsund krónur til að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ. Samkvæmt neysluviðmiðum velferðarráðuneytisins má áætla að par með tvö börn, annað í leikskóla, hitt í grunnskóla og í mötuneyti og gæslu eftir skóla, eyði 554.190 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Barnlaust par eyðir samkvæmt viðmiðum 349.302 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Fermetraverðið er langhæst Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi hvort sem litið er til tveggja eða þriggja herbergja íbúðar. Ef leigjandi vill spara sér aurinn lækkar leiguverð verulega við það að fara í úthverfi. Lítill munur er á leiguverði í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og svæðum Reykjavíkur sem eru lengra frá miðbænum, til dæmis í Grafarvogi og Breiðholti. Þegar litið er til þriggja herbergja íbúða sést að gríðarlegur munur er á því að leigja í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi eða milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar. Að meðaltali er tæplega þrjátíu þúsund króna munur á leiguverði, það munar álíka miklu að búa á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ eða í Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. apríl
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira