Innlent

Segir systkinin hafa tekið tugi milljóna af bankareikningi móður sinnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
"Vænt­an­lega hefðu sömu ein­stak­ling­ar og tala með þess­um hætti farið var­leg­ar með fjár­muni henn­ar ef sú hefði verið raun­in í stað þess að draga sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi henn­ar,“ segir Júlíus Vífill um fjárhagsstöðu móður sinnar og hegðun systkina.
"Vænt­an­lega hefðu sömu ein­stak­ling­ar og tala með þess­um hætti farið var­leg­ar með fjár­muni henn­ar ef sú hefði verið raun­in í stað þess að draga sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi henn­ar,“ segir Júlíus Vífill um fjárhagsstöðu móður sinnar og hegðun systkina. Vísir/Daníel

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir „ótrúlega ófyrirleitið að halda því fram að hann hafi með einhverjum hætti gengið í eða sölsað undir sig sjóði í eigu annarra“. Það séu gróf ósannindi og mannorðsmeiðandi. Þetta segir Júlíus í yfirlýsingu sem hann sendi Kastljósi vegna umfjöllunar gærkvöldsins

Í þættinum í gærkvöldi var greint frá því að systkini Júlíusar Vífils ætluðu að fela bresku rannsóknarfyrirtæki að reyna að hafa uppi á varasjóði Ingvars Helgasonar. Sökuðu þau Júlíus Vífil um að hafa gengist við því, eftir að í ljós kom að hann hefði stofnað aflandsfélag á Panama, að þar væri að finna sjóði foreldra hans. Sjóði sem móðir þeirra heitin hefði leitað að í á annan áratug eftir að Ingvar Helgason lést árið 1999.

Júlíus hafnaði beiðni Kastljóss um viðtal vegna þáttarins í gær en eftir að Kastljós birti stiklu úr þættinum í hádeginu í gær sendi Júlíus yfirlýsingu til þáttarins.

„Það litla sem ég hef séð að fram kem­ur í þess­um þætti Kast­ljóss eru ým­ist al­gjör ósann­indi eða ómerki­leg ill­mælgi. Sér­stak­lega er ótrú­lega ófyr­ir­leitið að halda því fram að ég hafi með ein­hverj­um hætti gengið í eða sölsað und­ir mig sjóði í eigu annarra sem eru gróf ósann­indi og mann­orðsmeiðandi. Er yf­ir­leitt hægt að bregðast við get­gát­um og dylgj­um sem ekki byggja á nein­um gögn­um? Úr ágrein­ingi varðandi skipti á dán­ar­búi sem nú er í op­in­ber­um skipt­um verður leyst með öðrum hætti en í Kast­ljósþætti rík­is­sjón­varps­ins. Ég áskil mér all­an rétt til að bregðast síðar við þess­um þætti.“

Guðmundur Ágúst Ingvarsson sór sömuleiðis af sér sakir í viðtali við Vísi í gær. Hann vildi þó ekki útskýra í hverju misskilningurinn eða rangfærslurnar væru fólgnar. Hann myndi ráðfæra sig við lögfræðing.

Guðmundur Ágúst Ingvarsson er fyrrverandi formaður HSÍ.Vísir

Sakar systkinin um að taka fé af mömmu sinni

Júlíus Vífill segir í Morgunblaðinu í dag að hann hafi reynt að leiðrétta margar rangfærslur sem fram hafi komið í þættinum í gær. Lítill áhugi hafi verið að fá nema eina bjagaða hlið á málinu. Hann útskýrir þó ekki í samtali við Morgunblaðið hverjar umræddar rangfærslur séu, að því frátöldu að hann þverneitar að hafa sölsað undir sig sjóði í eigu annarra. Þá útskýrir hann að móðir þeirra hafi ekki búið við neinn fjárskort síðustu árin, þvert á móti. 



„Hún var sem bet­ur fer mjög vel efn­um búin og skorti ekk­ert, en því miður þjáð í mörg ár af Alzheimer. Vænt­an­lega hefðu sömu ein­stak­ling­ar og tala með þess­um hætti farið var­leg­ar með fjár­muni henn­ar ef sú hefði verið raun­in í stað þess að draga sér tugi millj­óna af banka­reikn­ingi henn­ar.“

Ekki liggur fyrir hver hafi verið eigandi félagsins Lindos Alliance sem fjárfesti í Ingvari Helgasyni árið 2001 og Júlíus Vífill lagði mikla áherslu á að hratt yrði gengið til samninga við. Þá hefur Júlíus Vífill sagt að aflandsfélagið sé í raun lífeyris- og vörslusjóður. Frá því greindi hann þegar hann sagði af sér sem borgarfulltrúi í apríl. Systkinin fullyrða að hann hafi tjáð þeim að þar væri að finna varasjóði foreldranna sem hann hafi ætlað að skila síðar. 

Ólst upp hjá nágrannahjónum

Í viðtali við DV árið 2013 sagði Júlíus Vífill meðal annars frá því hvernig hann hefði alist upp hjá eldri hjónum sem bjuggu í næsta húsi við hann sem barn. Hann hefði kallað þau ömmu og afa en í raun hefði verið um fósturforeldra að ræða. 

„Ég sé það oft á fólki að því þyki þetta merkilegt en mér hefur aldrei fundist þetta neitt tiltökumál. Þetta var ekki vegna þess að foreldrar mínir gætu ekki alið mig upp eða neitt slíkt. Ég valdi mér bara þessi yndislegu hjón og þau mig. En ég átti líka yndislega foreldra sem ég hef líka alltaf verið í góðu sambandi við. Sérstaklega eftir að ég fór að vinna hjá fjölskyldufyrirtækinu,“ sagði Júlíus Vífill í viðtalinu.

Júlíus Vífill tók við rekstri Ingvars Helgasonar ásamt bræðrum sínum um aldamótin eftir fráfall föður þeirra. Rekstur fyrirtækisins fór á svipuðum tíma að ganga verr sé miðað við ársreikninga fyrirtækisins um aldamótin sem Kastljós birti í þætti gærkvöldsins.

Fréttastofu 365 hefur ekki tekist að ná tali af Júlíusi Vífli þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×