Innlent

Neitar að hafa ætlað að bana kunningja sínum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Manninum sem varð fyrir árásinni var hleypt inn í anddyri húss við stúdentagarða þar sem hann beið þar til sjúkrabíll kom.
Manninum sem varð fyrir árásinni var hleypt inn í anddyri húss við stúdentagarða þar sem hann beið þar til sjúkrabíll kom. vísir
26 ára karlmaður játar að hafa stungið kunningja sinn með hnífi við stúdentagarða Háskóla Íslands við Sæmundargötu aðfaranótt sunnudagsins 6. mars síðastliðinn. Hann neitar hins vegar að hafa ætlað að ráða honum bana. Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun.

Maðurinn sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir tilraun til manndráps en hann stakk jafnaldra sinn og kunningja með hnífi hægra megin í bakið við lifrarstað. Hnífurinn fór hliðlægt í lifrina og orsakaði slagæðablæðingu og loftbrjóst. Var maðurinn í lífshættu þegar hann kom á slysadeildina og var haldið sofandi í öndunarvél í nokkra daga. Hann hefur síðan verið útskrifaður af Landspítalanum.

Héraðssaksóknari krefst þess að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að greiða allan sakarkostnað. Þá fer sá sem fyrir árásinni varð fram á 4,3 milljónir króna í bætur.  Aðalmeðferð í málinu mun fara fram um miðjan júní. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×