Ákærður fyrir tilraun til manndráps á stúdentagörðunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. maí 2016 11:30 Manninum sem varð fyrir árásinni var hleypt inn í anddyri húss við stúdentagarða þar sem hann beið þar til sjúkrabíll kom. vísir
26 ára karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir tilraun til manndráps aðfaranótt sunnudagsins 6. mars síðastliðinn við stúdentagarða Háskóla Íslands. Manninum er gefið að sök að hafa stungið jafnaldra sinn og kunningja með hnífi hægra megin í bakið við lifrarstað. Hnífurinn fór hliðlægt í lifrina og orsakaði slagæðablæðingu og loftbrjóst. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrramálið. Héraðssaksóknari krefst þess að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að greiða allan sakarkostnað. Þá fer sá sem fyrir árásinni varð fram á 4,3 milljónir króna í bætur. Ákærði mun hafa játað hnífsstunguna í yfirheyrslum hjá lögreglu en neitar að hafa ætlað að bana kunningja sínum. Í gæsluvarðhaldskröfu yfir árásarmanninum í mars kom fram að maðurinn sem ráðist var á hafi verið í lífshættu þegar hann kom á slysadeild en hann var með stungusár neðarlega á baki sem olli rispu á lunga og fór djúpt inn í lifrina. Deilur mannanna hófust eftir að sá sem fyrir árásinni varð tók mynd af rassi kærustu ákærða í íbúð við stúdentagarð. Færðust deilur þeirra úr íbúðinni og út á götu þar sem átökin hörðnuðu og lauk með hnífsstungu. Ákærði sat í gæsluvarðhaldi í mánuð eftir árásina. Sá sem fyrir árásinni varð hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.
Tengdar fréttir Hnífsstunga á stúdentagörðum: Ungi maðurinn útskrifaður af gjörgæslu Árásarmaðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 6. apríl. 29. mars 2016 15:06 Hnífsstunguárásin: Sagðist fyrr um kvöldið ætla að drepa félaga sinn með hnúajárni Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður sem játað hefur að hafa stungið annan mann, félaga sinn, í bakið við Sæmundargötu aðfaranótt sunnudags sæti ekki áfram gæsluvarðhaldi, en samkvæmt dómi Hæstaréttar mun maðurinn vera í gæsluvarðhaldi til 6. apríl næstkomandi. 10. mars 2016 16:52 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira
Hnífsstunga á stúdentagörðum: Ungi maðurinn útskrifaður af gjörgæslu Árásarmaðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 6. apríl. 29. mars 2016 15:06
Hnífsstunguárásin: Sagðist fyrr um kvöldið ætla að drepa félaga sinn með hnúajárni Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður sem játað hefur að hafa stungið annan mann, félaga sinn, í bakið við Sæmundargötu aðfaranótt sunnudags sæti ekki áfram gæsluvarðhaldi, en samkvæmt dómi Hæstaréttar mun maðurinn vera í gæsluvarðhaldi til 6. apríl næstkomandi. 10. mars 2016 16:52