Innlent

Stærstu eggjaframleiðendur landsins: Matvælastofnun brást ábyrgðarhlutverki sínu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Jón Gíslason er forstjóri Mast.
Jón Gíslason er forstjóri Mast. Vísir

Tveir stærstu eggjaframleiðendur landsins, Nesbú og Stjörnuegg, segja umfjöllun Kastljóss um Brúnegg hafa verið algjört reiðarslag. Þeir segja Matvælastofnun ekki hafa sinnt ábyrgðarhlutverki sínu og kalla eftir betra verklagi. Báðir fullyrða að aðbúnaður hjá þeim sé með besta móti.



Greint var frá því í Kastljósi í gær að fyrirtækið Brúnegg hefði um árabil blekkt neytendur með sölu á vistvænum eggjum og að aðbúnaði hefði verið verulega ábótavant. Málið hefur vakið verulegan óhug og hafa flestar stórverslanir landsins ákveðið að taka eggin úr sölu.



Geir Gunnar Geirsson, eigandi Stjörnueggja, segist furða sig á vinnubrögðum MAST og þeirri linkind sem stofnunin hafi sýnt Brúneggjum.



„Ég er ekki viss um að það sé skortur á eftirliti en ég veit ekki hvaða linka þetta er. Ég er sannfærður um það að ef við hefðum hagað okkur svona að það væri löngu búið að slá okkur af,“ segir Geir í samtali við Vísi.



„Þetta fólk, sem starfar við eftirlitið, virðist skorta þá reynslu að hafa starfað við þetta, og bara séð hvernig þetta er á blaði. Það yrði stór bót ef þetta fólk hefði starfað við þetta, kannski ekkert í 100 ár eins og ég, en þannig að það vissi um hvað málið snýst. Fólk verður að vita í hvorn endann fóðrið fer og hvaðan eggið kemur. Það væri mjög æskilegt. En þetta er náttúrulega svakaleg bilun að kerfið skuli ekki hafa tekið í taumana fyrr. Miklu fyrr.“



Aðspurður segir Geir aðbúnað hjá Stjörnueggjum með besta móti. „Við erum með helming af okkur fuglum, yfir 60 prósent, í lausagöngu. Hitt er í hefðbundnum búrum enn þá. Við erum að vinna að því að breyta öllu samkvæmt þessari nýju reglugerð sem á að taka gildi árið 2020.“



En hvernig getur fólk treyst því að aðbúnaður hjá ykkur sé í lagi, og ekki sambærilegur því sem viðgekkst hjá Brúneggjum?



„Þarf ekki svolítið samviskulausa aðila að reka þetta með þessum stíl? Ég myndi að minnsta kosti ekki þola það að lenda í þessari stöðu. Ég er hræddur um að ég myndi ekki standa uppréttur á eftir. En auðvitað á þessi eftirlitsstofnun, en og hún á að heita, náttúrulega að sjá um þetta og hafa þessa hluti í lagi .Ef það koma upp svona mál þá á að nota strax þau úrræði sem eru til þess,“ segir Geir, og bætir við að þetta muni hafa veruleg áhrif á markaðinn.



Stefán Már Símonarson, framkvæmdastjóri Nesbúseggja, tekur í sama streng. „Ég er bara í losti. Það eru allir miður sín yfir þessu. Þetta er bara skelfilegt fyrir búgreinina sem slíka og skaðar okkur alla. Auðvitað lenda Brúnegg verst í þessu en þessi neikvæða umræða getur bitnað á okkur líka og getur dregið úr eggjaneysla,“ segir hann. 



Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Stöð 2, tók hús á Nesbú í janúar síðastliðnum. Fréttina má sjá hér að neðan.

Stefán fullyrðir að þær ábendingar sem fyrirtækinu hafi borist frá MAST hafi alltaf verið minni háttar. „En þetta mun hraða ferlinu hjá okkur að innleiða Þessa nýju landbúnaðarreglugerð, þannig að við verðum búin að innleiða það kerfi allt saman innan fárra missera.“



Tvö eggjabú eru með vottun frá Túni um lífrænan landbúnað, en það er Nesbú annars vegar og Sólheimar hins vegar.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×