Enski boltinn

Sky segir að Zlatan sé á leið til Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic mun semja við Man. Utd fyrir EM. Svo herma heimildir Sky-fréttastofunnar.

Samkvæmt heimildum Sky er Ed Woodward hjá Man. Utd að ganga frá þessum samningi við umboðsmenn Zlatan. Samningurinn yrði til eins árs.

Zlatan er án samnings þar sem samningur hans við PSG er að renna út. Hann hafði gefið það út áður að hann myndi ekki spila áfram með félaginu.

Sömu heimildarmenn Sky segja að Zlatan sé eini framherjinn sem nýráðinn stjóri Man. Utd, Jose Mourinho, vilji semja við í sumar.

Mourinho er sagður hafa trú á því að Marcus Rashford geti haldið áfram að skora fyrir félagið og því vilji hann aðeins ná í einn framherja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×