Innlent

Dýrt að sækja í Vesturbæinn

Sæunn Gísladóttir skrifar
Ef leigjandi vill spara sér aurinn borgar sig að leigja í úthverfum Reykjavíkur. Gríðarlegur munur getur verið á leiguverði vestan og austan við Kringlumýrarbraut, ódýrast er að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ.

Til að leigja þriggja herbergja áttatíu og fimm fermetra íbúð í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi þarf par með tvö börn að vera með 747 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Parið þarf töluvert lægri ráðstöfunartekjur til að leigja á Kjalarnesi eða í Mosfellsbæ, eða 692 þúsund krónur.

Ef barnlaust par hyggst leigja tveggja herbergja sextíu fermetra íbúð á höfuðborgarsvæðinu þarf það 502 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði til að leigja í vesturhluta Reykjavíkur, en töluvert minna eða 460 þúsund krónur til að leigja á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ.

Samkvæmt neysluviðmiðum velferðarráðuneytisins má áætla að par með tvö börn, annað í leikskóla, hitt í grunnskóla og í mötuneyti og gæslu eftir skóla, eyði 554.190 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Barnlaust par eyðir samkvæmt viðmiðum 349.302 krónum á mánuði án húsnæðiskostnaðar.

Fermetraverðið er langhæst Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi hvort sem litið er til tveggja eða þriggja herbergja íbúðar. Ef leigjandi vill spara sér aurinn lækkar leiguverð verulega við það að fara í úthverfi.

Lítill munur er á leiguverði í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og svæðum Reykjavíkur sem eru lengra frá miðbænum, til dæmis í Grafarvogi og Breiðholti. Þegar litið er til þriggja herbergja íbúða sést að gríðarlegur munur er á því að leigja í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar og á Seltjarnarnesi eða milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar. Að meðaltali er tæplega þrjátíu þúsund króna munur á leiguverði, það munar álíka miklu að búa á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ eða í Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. apríl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×