Bíó og sjónvarp

Eyða milljónum dollara til að gera Suicide Squad fyndnari

Birgir Olgeirsson skrifar
Meðlimir Suicide Squad.
Meðlimir Suicide Squad. Vísir/DC Comics
Nýi DC-ofurhetjuheimurinn sem er í mótun hefur ekki státað af mörgum kómískum andartökum en það gæti orðið breyting á því.

Í janúar síðastliðnum sendi bandaríska kvikmyndaverið Warner Bros frá sér stiklu úr myndinni Suicide Squad sem er væntanleg í kvikmyndahús í ágúst næstkomandi. Myndin segir frá því hvernig illmennum úr DC-myndasöguheiminum er gefið færi á að milda fangelsisrefsingu sína með því að taka að sér verkefni sem virðast feigðarför.

Stiklan er á gamansömum nótum og hlaut fádæma viðtökur. Við kvikmyndaverinu blasti hins vegar það vandamál að þeir brandarar sem eru í stiklunni, eru þeir einu sem eru í myndinni.

Vefurinn Birth.Movies.Death. hefur eftir heimildum að Warner Bros hafi fyrirskipað framleiðendum myndarinnar að taka upp fleiri atriði fyrir myndina þar sem fókusinn er á húmor og ærslagang. Eru tökurnar sagðar kosta kvikmyndaverið milljónir dollara.

Warner Bros eru með á teikniborðinu fjölda kvikmynda þar sem ofurhetjum og illmennum DC-sagnabálksins er att saman. Fyrst leit dagsins ljós Man of Steel árið 2013 og svo nú fyrir páska Batman v Superman: Dawn of Justice.

Báðum myndunum hefur verið vel tekið af kvikmyndagestum, ef einungis er horft til ágóða af miðasölu, en gagnrýnendur hafa farið hörðum orðum um Batman v Superman: Dawn of Justice og nánast jarðað hana í dómum sínum. Sem gaf af sér þetta myndband þar sem Ben Affleck, sem fer með hlutverk Bruce Wayne/Batman, virðist taka þessum dómum afar nærri sér.

Grafalvarlegur tónn hefur verið í þessum fyrstu tveimur myndum og telja margir að húmorinn í Suicide Squade verði kærkomin tilbreyting frá því.

Níu kvikmyndir eru í bígerð, þar á meðal myndir um Wonder Woman, The Flash og Aquaman, en allt á þetta að leiða að ásunum upp í ermi Warner Bros, Justice League Part One og Part Two, þar sem öllu verður til tjaldað.


Tengdar fréttir

Ofurhetjur slá aðsóknarmet

Nýjasta ofurhetjumyndin, Batman v Superman: Dawn of Justice, hefur halað inn 424 milljónir dollara, sem nemur 53 milljörðum íslenskra króna, í aðsóknartekjur úti um allan heim á fyrstu fimm sýningardögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×