Lífið

Misheppnað símaat breyttist í opið spjall um hjónaskilnað og vindverki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auðunn fer hér á kostum.
Auðunn fer hér á kostum. vísir/gva
Útvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal hrindi á Café Catalina í útvarpsþættinum FM95BLÖ á föstudaginn og þóttist vera Bjarni Ármanns, umboðsmaður hljómsveitarinnar Krummarnir.

Upphaflega ætlaði Auðunn að hringja inn sem áhyggjusamur umbi og forvitnast hvort allt væri nú ekki í lagi fyrir kvöldið.

Barþjóninn sem svaraði var ekki lengi að átta sig á því að þetta væri nú hann Gylfi, góðvinur staðarins.

Eftir dágóða stund játaði Auðunn sig sigraðan og viðurkenndi að hann væri Gylfi. Hann opnaði sig heldur betur fyrir barþjóninum og tjáði henni að hann væri að skilja við konuna sína og það læki úr rassgatinu á honum.

Spjall sem enginn má sleppa því að hlusta en það má heyra hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.