Íslensk skip miða áfram við 100 þúsund tonn af loðnu Kolbeinn Tumi Daðson skrifar 18. febrúar 2016 17:02 Samkvæmt áætlun 2016 verður Árni Friðriksson við mælingar og rannsóknir í 170 daga. Vísir/Anton Brink
Ákvörðun Hafrannsóknarstofnunar um 100 þúsund tonna loðnukvóta til íslenskra skipa stendur. Þetta er niðurstaðan að loknum mælingum á loðnustofninum í kringum landið frá 1.-17. febrúar. Engar breytingar á að gera á áður útgefinni ráðgjöf um aflamark. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.Sérstök umræða var um málið á Alþingi í vikunni þar sem Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar, lýsti áhyggjum sínum með mat Hafró á loðnustofninum í janúar. Var veiðistofninn metinn um 675 þúsund tonn en ráðlögð veiði er 177 þúsund tonn. Af þeim er leyfilegur afli íslenskra skipa 100 þúsund tonn.Kristján L. Möller.Tólf milljarðar króna á 100 þúsund tonn Kristján sagði að hafa yrði í huga að 100 þúsund tonn af loðnu væru um 12 milljarða króna virði. Matið væri byggt á niðurstöðum annarra tveggja vikna sem rannsóknir stóðu yfir. Veður og aðstæður hefðu hamlað rannsókninni. Af þeim sökum var farið í aðra mælingu í febrúar sem var fjármögnuð af hagsmunaaðilum. Tilkynnningu Hafró má lesa í heild að neðan en þar kemur fram að ennþá minni loðna, um 500 þúsund tonn af kynþroska loðnu, hafi fundist í annarri mælingunni í síðari leiðangrinum. Enn minna hafi fundist í hinni mælingunni. Fram kemur að veðuraðstæður hafi aftur hamlað rannsókninni. Lagt sé til að gera ekki breytingar á áður útgefinni ráðgjöf. Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun:Mælingar á stærð loðnustofnsins í febrúar 2016 Vetrarmæling á loðnustofninum fór fram á rannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni dagana 1. – 17. febrúar 2016 með það að markmiði að endurmeta stærð veiðistofns loðnu. Áður hafði verið farið á Árna Friðrikssyni til vetrarmælingar dagana 3. - 21. janúar. Haldið var aftur til mælinganna með aðkomu hagsmunaaðila sem þátt tóku í fjármögnun leiðangursins. Rannsóknasvæðið var landgrunnið og landgrunnsbrúnin frá Grænlandssundi, vestur með Norðurlandi og allt að sunnanverðum Austfjörðum. Veður hamlaði mælingum mikinn hluta tímans sem skipunum var haldið úti, en tvær yfirferðir náðust fyrir austan land þar sem mest var af loðnu. Sú fyrri fór fram dagana 3. - 9. febrúar, að mestu á Bjarna Sæmundssyni frá Austfjörðum norður um og allt vestur fyrir Kolbeinseyjarhrygg þar sem við tók yfirferð Árna Friðrikssonar vestur í Grænlandssund. Síðari yfirferðin náðist dagana 10. - 16. febrúar, í upphafi á báðum rannsóknaskipunum en 12. febrúar hætti Bjarni þátttöku vegna annarra verkefna og mælingin kláruð á Árna Friðrikssyni ásamt því að grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq aðstoðaði við leit og afmörkun rannsóknasvæðisins. Loðna fannst aðallega fyrir Austurlandi, en einnig dreift með landgrunnsbrúninni vestur með Norðurlandi og allt vestur í Grænlandssund en þar var loðnan að miklu leyti ókynþroska. Um 500 þúsund tonn af kynþroska loðnu (um 23 milljarðar fiska) mældust í fyrri yfirferðinni dagana 3. - 9. febrúar, sem er nokkru minna en mældist í janúar þegar um 675 þúsund tonn mældust jafnvel þó tekið sé tillit til veiða og afráns. Mun minna mældist í síðari yfirferðinni enda veðurskilyrði verri á meðan á henni stóð. Ennfremur er þekkt að erfiðlega gengur að mæla loðnu þegar styttist í og eftir að hún gengur upp á grunninn til hrygningar. Í ljósi niðurstaðna úr leiðangrinum sem og veiða og afráns frá því að mælingar fóru fram í janúar, auk þess sem að veður hamlaði rannsókninni ítrekað, leggur Hafrannsóknastofnun ekki til breytingar á áður útgefinni ráðgjöf um aflamark.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira