Innlent

Vill að Hæstiréttur nýti tækifærið og hvetji burðardýr til samvinnu með lögreglu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björgvin taldi ekki óeðlilegt að dómurinn yfir Mirjam yrði mildaður í sex ára fangelsi og vísaði í fjölmörg mál til samanburðar sem hann taldi styðja sitt mál.
Björgvin taldi ekki óeðlilegt að dómurinn yfir Mirjam yrði mildaður í sex ára fangelsi og vísaði í fjölmörg mál til samanburðar sem hann taldi styðja sitt mál. Mynd af vef lögreglunnar
Björgvin Jónsson, verjandi Mirjam Foekje van Twuijver, telur fulla ástæðu til að milda ellefu ára dóm sem hún hlaut í héraði fyrir innflutning á um 20 kílóum af fíkniefnum í apríl í fyrra. Björgvin segir ljóst að Mirjam hafi verið samvinnuþýð frá því augnabliki þegar hún áttaði sig á því að hún hefði verið svikin af skipuleggjendum. 85 þúsund MDMA-töflur voru í tösku sem dóttir hennar flutti til landsins en Mirjam fullyrðir að aðeins hafi átt að vera fíkniefni í þeirri tösku sem hún hafði með í för. Þetta kom fram í málflutningi í Hæstarétti í morgun.

Málið hefur verið til mikillar umfjöllunar undanfarið tæpt ár enda eitt umfangsmesta fíkniefnamál sem komið hefur upp hér á landi og dómurinn sem Mirjam fékk í héraði sérstaklega þungur. Refsiramminn í málaflokknum er tólf ára fangelsi. Verði dómurinn yfir henni staðfestur í Hæstarétti verður hann sá þyngsti sem nokkur aðili hefur hlotið hér á landi. Óumdeilt er að Mirjam var burðardýr í innflutningnum.

Fyrir dómi er tekist á um það hversu mikla ábyrgð Mirjam beri á tösku dótturinnar sem í var að finna MDMA-töflurnar fyrrnefndu. Saksóknari telur morgunljóst að hún hafi borið ábyrgð á töskunum báðum enda dóttirin ólögráða. Björgvin telur að sama skapi ljóst af ákafa Mirjam til að veita lögreglu aðstoð að hún hafi talið sig hafa verið svikna. Í samtölum við hollenska aðila eftir komuna til landsins hafi komið skýrt fram að dóttir hennar hafi ekki átt að blandast í málið. 

Ótímabær handtaka ekki Mirjam að kenna

Hún gaf strax upp nöfn þeirra aðila sem fengu hana til verksins en þau nöfn voru staðfest af hollenskri lögreglu. Umræddir aðilar voru hins vegar fluttir til Spánar þegar lögregla í Hollandi fór að skoða þeirra þátt málsins.Saksóknari og verjandi voru báðir sammála um að ekkert benti til þess að dóttirin hefði verið upplýst um tilgang ferðarinnar.

Mæðgurnar komu til landsins á föstudaginn langa en tálbeituaðgerð var sett í gang þriðjudaginn 7. apríl, fimm dögum síðar eftir að samband hafði náðst við aðila sem fullyrtu við Mirjam að hún væri að spila með lögrelgu. Verjandi hennar benti á að Mirjam hefði staðið sig svo vel í hlutverki sínu í tálbeituaðgerðinni að skipuleggjendur ákváðu að senda Atla Frey á vettvang og sækja efnin.

Hann var hins vegar handtekinn fyrir utan Hótel Frón eftir að hafa veitt gerviefnum viðtöku og því náði rannsóknin ekki lengra. Verjandi benti á að mistök eða misskilningur hjá lögreglu væri ekki á ábyrgð Mirjam. Hefði eftirför tekist vel hefði náðst til viðtakenda fíkniefna hér á landi og málið horft öðruvísi við.

Björgvin taldi ekki óeðlilegt að dómurinn yfir Mirjam yrði mildaður í sex ára fangelsi og vísaði í fjölmörg mál til samanburðar sem hann taldi styðja sitt mál. Fyrst og fremst skyldi þó líta til þeirrar samvinnuþýði sem Mirjam hefði sýnt. Hæstiréttur ætti að senda skýr skilaboð að það virki sem hvatning fyrir burðardýr að vinna með lögreglu til að ná til skipuleggjenda.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×