Innlent

Upptakan sem allt snýst um en enginn áttar sig á

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið er annað tveggja sem snýr að lögreglumönnum tengdum fíkniefnadeildinni. Hitt málið snýr að lögreglufulltrúa sem kollegar gerðu athugasemdir við fyrir tæpu ári. Héraðssaksóknari hefur málið til rannsóknar.
Málið er annað tveggja sem snýr að lögreglumönnum tengdum fíkniefnadeildinni. Hitt málið snýr að lögreglufulltrúa sem kollegar gerðu athugasemdir við fyrir tæpu ári. Héraðssaksóknari hefur málið til rannsóknar. Vísir/GVA
Rannsókn ríkissaksóknara á meintum greiðslum frá aðila sem verið hefur til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglu undanfarin ár til reynds rannsóknarlögreglumanns er langt á veg komin.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir í samtali við Vísi að rannsókn sé vel á veg komin. Reikna megi með því að ákvörðun um hvort ákært verði í málinu liggi fyrir fljótlega. Lögreglumaðurinn er sakaður um að hafa þegið greiðslur og hinn aðilinn grunaður um að hafa borið fé á lögreglumann. Báðir neita sök.

Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari.vísir/gva
Fáheyrt gæsluvarðhald

Málið er forvitnilegt fyrir margra hluta sakir en það heyrði til tíðinda þegar rannsóknarlögreglumaðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok síðasta árs. Var hann í varðhaldi á Litla-Hrauni í viku, yfir áramótin. Daginn sem honum var sleppt var annar aðili, sem hlotið hefur dóm fyrir fíkniefnabrot og hefur verið til rannsóknar hjá fíkniefnadeildinni undanfarin ár, úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.

Fáheyrt er að lögreglumenn séu úrskurðaðir í gæsluvarðhald og hafi það gerst áður er ljóst að síðan hafa liðið áratugir. Hvers vegna báðir aðilar voru ekki settir í varðhald á sama tíma heldur hvor á eftir öðrum vekur einnig athygli. Lykilatriðið í rannsókn málsins, og raunar kveikjan að málinu, er upptaka þar sem mennirnir ræða saman. Í samtalinu er minnst á peningaupphæð sem þykir renna stoðum undir að lögreglumaðurinn hafi þegið greiðslu frá hinum aðilanum.

Báðir mennirnir sátu í gæsluvarðhaldi.Vísir/GVA
„100 kall“

Samkvæmt heimildum Vísis sýnist sitt hverjum um það sem heyrist á upptökunum. Sá sem lögregla telur tengdan fíkniefnaheiminum minnist á upphæðina „100 kall“. Telja sumir það benda til þess að óeðlileg tengsl hafi verið á milli mannanna og peningagreiðslur átt sér stað. Á sama tíma segja aðrir upptökuna óskýra og þótt minnst sé á peningaupphæð sé það engin sönnun fyrir því að greiðslur hafi átt sér stað.

Samtalið var tekið upp án vitundar rannsóknarlögreglumannsins samkvæmt heimildum Vísis. Í hvaða tilgangi liggur ekki fyrir en líklegt má telja að hinn aðilinn hafi viljað eiga slíka upptöku ef það gæti nýst honum síðar. 

Upptakan barst lögreglu og ríkissaksóknara í desember sem úrskurðaði í framhaldi báða aðila í gæsluvarðhald eins og minnst er á að framan. Því virðist hagur hins grunaða sem tók upp samtalið hafa verið lítill af því að upptakan barst í hendur lögreglu enda gæti hann verið ákærður innan tíðar. 

Samkvæmt heimildum Vísis höfðu mennirnir verið í óformlegu upplýsingasambandi en þeir þekkjast frá því þeir stunduðu íþróttir saman.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×