Innlent

Sátt náðist í deilu vegna sprenginga

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Sprengt í bakgarðinum. Hús Svanlaugar Rósar Ásgeirsdóttur er í sex metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengt var fyrir bílakjallara fjölbýlishúss á Lýsisreitnum.
Sprengt í bakgarðinum. Hús Svanlaugar Rósar Ásgeirsdóttur er í sex metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengt var fyrir bílakjallara fjölbýlishúss á Lýsisreitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mál íbúa í tveimur húsum við Grandaveg og Lágholtsveg í Reykjavík á hendur byggingafélaginu Þingvangi, undirverktakanum Hagtaki og Vátryggingafélagi Íslands vegna sprenginga á svokölluðum Lýsisreit hefur verið fellt niður, að sögn Tómasar Hrafns Sveinssonar lögmanns.

Tómas Hrafn Sveinsson
„Það náðist sátt í málinu í síðustu viku. Fallist var á að þeir bæru ábyrgð,“ segir Tómas sem er lögmaður íbúanna.

Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir, íbúi á Lágholtsvegi sem býr í aðeins sex metra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengt var, fagnar niðurstöðunni. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Þetta hefur legið í loftinu,“ segir Svanlaug sem greindi í viðtali við Fréttablaðið í fyrra frá því að skemmdir hefðu orðið á húsi hennar vegna sprenginganna.

Byrjað var að sprengja klöpp á Lýsisreitnum vegna fyrirhugaðrar byggingar fjölbýlishúss 6. janúar í fyrra og stóðu sprengingarnar yfir í tæpa þrjá mánuði. Í upphafi var sprengt fimm til sex sinnum á dag og sögðu íbúar í nágrenninu að í hvert skipti hefði allt nötrað og skolfið og að skemmdir hefðu orðið á húsum þeirra. Í kjölfar kvartana íbúa var magn sprengisefnis minnkað um helming nokkrum vikum eftir að sprengingar hófust.

Svanlaug rós Ásgeirsdóttir
Íbúarnir voru ósáttir við þau svör tryggingafélags verktakans að það væri ekki skyldugt til að bæta skaðann nema um sök væri að ræða.

Mat á tjóninu er nú framundan, að sögn lögmanns íbúanna. „Matsmaður metur hvort tjón hafi átt sér stað og hversu mikið það er og sá sem ber ábyrgð greiðir fyrir störf hans.“

Björn Stefán Hallsson
Björn Stefán Hallsson byggingarfulltrúi bjó í maí síðastliðnum til nýja reglu til notkunar innan borgarlóðarinnar. „Sprengjutíðni og sprengiafl var lækkað vegna þess að sú reglugerð um notkun sprengiefna sem stuðst er við er gríðarlega rúm og tekur lítið mið af mannlegum þáttum og viðbrögðum. Framkvæmdin getur verið innan leyfilegra efri marka þótt hún valdi skemmdum.“

Nú verður miðað við að hámark bylgjuhraða sé 15 mm á sekúndu að hámarki og 10 Hz að lágmarkstíðni. Skal mæling miðast við lóðarmörk framkvæmda. „Mesta sprengiafl á Lýsisreit var 69 mm á sekúndu. Langmestur meirihluti sprenginga var innan við 20 til 25 mm,“ segir byggingarfulltrúi.

Hann segir nýju regluna hafa verið samþykkta á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í maí.

Íbúar á Grettisgötu 8 óttast að skemmdir geti orðið á bakhúsi á lóð þeirra verði sprengt fyrir grunnum húsa sem til stendur að flytja á Grettisgötu 9a og 9b. Björn Stefán Hallsson byggingarfulltrúi telur ólíklegt að sprengingar verði leyfðar á svæðinu. „Þarna er fjöldi gamalla húsa á gömlum sökklum í næsta nágrenni sem varhugavert er að lendi í titringi.“

Björn segir mun líklegra að notaðir verði fleygar. „Hávaðinn verður miklu minni og titringur lítill sem enginn en það sem er óþægilegt er það að þetta er í gangi allan daginn á meðan á framkvæmdum stendur. Slíkt hefur farið gríðarlega illa í suma.“

Að sögn Björns er í undirbúningi regla um að gert verði hlé með vissu millibili yfir vinnudaginn þegar fleygar eru notaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×