Barðist gegn nauðungarvistun og tapaði Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2015 08:00 Maðurinn var vistaður á bráðageðdeild við Hringbraut. Vísir/Valli/Getty
Maður í geðrofi höfðaði mál gegn Velferðarsviði Reykjavíkurborgar eftir að hann hafði verið nauðungarvistaður á sjúkrahúsi. Hann hafði verið kyrrsettur þann 6. mars síðastliðinn, eftir að hafa komið á bráðamóttöku geðdeildar í fylgd lögreglu, eftir að . Hæstiréttur hefur nú staðfest úrskurð innanríkisráðuneytisins. Faðir mannsins setti sig ekki upp á móti nauðungarvistuninni. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að maðurinn, sem er 32 ára gamall, hafi verið staddur á veitingahúsi í Reykjavík. Þar ásakaði hann veitingamanninn um að hafa átt þátt í að hann hafi verið lagður inn á geðdeild fyrir mörgum árum. Maðurinn hefur sögu um misnotkun áfengis og kannabisefna frá 14 ára aldri. Með nauðungarvistunarbeiðninni fylgdi læknisvottorð frá 7. mars. Þar segir að nauðungarvistun sé óhjákvæmileg svo maðurinn fái greiningu og nauðsynlega meðferð. Hann sé í geðrofsástandi og innsæislaus. Þá hafi ekki gengið að aðstoða hann á göngudeild. Ástandi hans sé þannig að jafna megi til alvarlegs geðsjúkdóms.Sagðist ekki hafa þörf fyrir meðferð Maðurinn sjálfur talaði við dóminn þar sem hann var rólegur og yfirvegaður og krafðist þess að nauðungarvistuninni yrði aflétt. Í dómnum segir að hann hafi alfarið hafnað því að eiga við veikindi að stríða og hefði ekki þörf fyrir meðferð. Þá sagði hann enga hættu á að hann færi í neyslu yrði vistuninni aflétt. Talsmaður mannsins sagði ða nauðgunarvistun væri ekki nauðsynleg til verndar lífs og heilsu mannsins. Maðurinn sagði ástand sitt engan veginn vera hægt að jafna til alvarslegs geðsjúkdóms og hann ætti ekki við vímefnavanda að stríða. Hann sagði að ástandi hans væri engan veginn hægt að jafna til alvarlegs geðsjúkdóms og hann ætti ekki við vímuefnavanda að stríða. Dómurinn ræddi einnig við geðlækni sem hafi unnið með manninum frá því hann var lagður inn. Hann sagði að meðferð með geðrofslyfjum hefði gengið ágætlega en hann væri enn í geðrofi og enn bæri á ranghugmyndum. Þörfin fyrir áframhaldandi meðferð væri enn til staðar en að maðurinn gerði sér ekki grein fyrir því. Dóma Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira