FA krefur ríkið um endurgreiðslu á rúmum 300 milljónum Heimir Már Pétursson skrifar 24. mars 2015 12:27 Innflutningsfyrirtæki búvara hafa nú þegar greitt útborðsgjald vegna innflutnings á þessu ári þótt varan hafi ekki öll verið flutt inn. Héraðsdómur segir gjaldið brot á stjórnarskrá.
Félag atvinnurekenda krefst þess að ríkisvaldið endurgreiði innflytjendum matvöru frá Evrópusambandinu rúmar 300 milljónir af fyrirframgreiddu útboðsgjaldi vegna innflutningsins, í ljósi þess að héraðsdómur hafi dæmt gjaldið ólöglegt. Verð á innfluttri búvöru gæti lækkað um tugi prósenta með afnámi gjaldsins. Félag atvinnurekenda hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu bréf og farið fram á að útboðsgjald á tollkvóta fyrir búvörur, sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi sl. þriðjudag að væri í andstöðu við stjórnarskrá, verði endurgreitt þeim fyrirtækjum sem ekki hafi þegar nýtt innflutningsheimildir sínar. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir innflytjendur greiða útboðsgjald vegna innflutnings búvara ár fram í tímann. Það sé gert í upphafi árs vegna innflutnings frá ríkjum Evrópusambandsins. „Núna í upphafi árs eru fyrirtæki t.d. búin að borga rúmar 300 milljónir króna fyrir tollfrjálsan kvóta frá Evrópusambandinu. En fæst eru búin að flytja inn nema lítinn hluta af honum. Þannig að sjálfsögðu á ríkið að endurgreiða þetta gjald sem dómstólar eru búnir að dæma ólöglegt,“ segir Ólafur. Ef ríkið endurgreiði ekki gjaldið sé það að þvinga innflytjendur búvara frá Evrópusambandinu til að hleypa gjaldinu út í verðlagið eins og gerst hafi undanfarin ár. Afnám þessa gjalds skipti miklu máli fyrir neytendur. „Fyrir kíó af innfluttum kjúklingi t.d. er gjaldið 618 krónur. Ef það væri tekið af myndi poki af kjúklingabringum út úr búð lækka í verði frá 1.600 til 1.800 krónum niður í þúsundkall til tólfhundruð krónur. Neytendur munar um minna,“ segir Ólafur. Gjaldið nær einnig til annarra kjöttegunda, osta og almennt allrar búvöru sem flutt er inn frá Evrópusambandinu. Útboðsgjald vegna vöru sem flutt er inn á grundvelli Alþjóðatollabandalagsins (WTO) er hins vegar greitt fyrirfram um mitt ár. Félag Atvinnurekenda krefst þess að atvinnuvegaráðuneytið svari því fyrir morgundaginn hvort gjaldið verði endurgreitt, en ekki liggur fyrir hvort ríkið ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. „Það stendur náttúrlega þetta álit héraðsdóms að útboðsgjaldið fari í bága við stjórnarskrá. Þá hlýtur ríkið að bregðast við,“ segir Ólafur. En hvað með þau útboðsgjöld sem fyrirtæki hafa greitt á árum áður? „Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að endurgreiða gjaldið aftur í tímann vegna þess að innflytjendur hefðu velt þessu út í verðlagið. En vara þar sem búið er að greiða útboðsgjald en er ekki seld um hana gegnir öðru máli. Ef ríkið ætlar að halda þessu til streitu er beinlínis verið með ólöglegum og ómálefnalegum hætti verið að velta þessu tjóni yfir á neytendur,“ segir Ólafur Stephensen.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Erlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Fleiri fréttir Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Sjá meira