Hannaði íþróttabol sem virkar eins og tölva Hjörtur Hjartarson skrifar 24. mars 2015 17:00
Ungur Íslendingur vinnur nú að því að hanna og framleiða íþróttabol sem vonir standa til að slái í gegn á risavöxnum heilsuvörumarkaði í Bandaríkjunum. Bolurinn er í raun tölva sem mælir lífeðlisfræðilega þætti. Þriggja manna fyrirtæki hans hefur nú þegar fengið einkaleyfi á vörunni og stefnt er á fjöldaframleiðslu innan tíðar. Umræddur bolur er mikið undratæki. Hann mælir öndun, hreyfingu og hjartslátt svo fátt eitt sé nefnt. Gögnin eru síðan send í tölvu eða síma eigandans og úr þeim er síðan unnið. 50 manna jóghópur í Boston er að prófa vöruna þessa dagana og hafa viðbrögðin verið framar vonum, segir Arnar Freyr Lárusson, vélaverkræðingur og hönnuður. „Þegar við sýndum fólki sem er að stunda jóga hvað við gátum numið ljómuðu andlit þeirra. Þetta var í fyrsta sinn sem þau gátu séð hvað þau voru að gera á meðan æfingunni stóð og hvernig þau gátu bætt sig á ítarlegri hátt en kennari gat sagt þeim.“Arnar hefur í félagi við tvo Bandaríkjamenn stofnað fyrirtæki sem hefur aðsetur í Boston. Heilsuvörumarkaðurinn í Bandaríkjunum veltir mörg þúsund milljörðum á hverju ári og er samkeppnin hörð. Arnar segir þó að um einstaka vöru sé að ræða sem vonandi nær athygli. „24 milljónir manna stunda jóga í Bandaríkjunum og rétt um 27 milljörðum dollara er eytt í jógavörur og búnað,“ segir Arnar. Það er því eftir miklu að slægjast. En þó sjónunum sé aðallega beint að jógamarkaðnum núna, þar sem öndunin er sérstaklega mikilvæg, er það aðeins fyrsta skrefið. „Til dæmis eins og að greina kæfisvefn eða fólk með lungnateppusjúkdóm. Við getum numið streitu hjá fólki og hvenær það er að anda þannig að það veldur streitu. Í kjölfarið getum við svo þjálfað það upp í að róa sig niður með ákveðnum öndunartækni,“ segir Arnar. Arnar mun frumsýna lausnir sínar á alþjóðlegu ráðstefnunni Point Zero sem fer fram í Gamla bíó þann 22. april næstkomandi. Arnar verðurí hópi fyrirlesara sem gefa gestum ráðstefnunnar smjörþefinn af framtíðinni. Til umfjöllunar á ráðstefnunni verða þær gríðar hröðu breytingar á viðskiptaumhverfi heimsins sem hófust með tilkomu stafrænna viðskipta.
Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira