Réðust á par með hnífum og hamri Samúel Karl Ólason skrifar 20. ágúst 2015 09:15 Báðir mennirnir voru dæmdir í gæsluvarðhald og einangrun til 24. ágúst. Vísir/Getty
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem gert er að hafa ásamt öðrum manni ráðist á par með hnífi og hamri á laugardagskvöldið. Mennirnir frelsissviptu þau og stolið af þeim fartölvu og síma. Mennirnir eru sagðir hafa rutt sér leið inn íbúð í Breiðholti og veist að stúlku og kærasta hennar, hugsanlega vegna fíkniefnaskuldar. Þeir hafa báðir verið dæmdir fyrir ofbeldisbrot áður. Þegar lögreglan kom á vettvang voru mennirnir farnir en stúlkan sagði þá hafa ruðst inn í herbergi þar sem kærasti hennar lá sofandi og ráðist á hann. Hún segir annan þeirra hafa tekið upp hníf og skorið kærastann í fótinn. Því næst hafi þeir látið höggin dynja á honum.Tilefnið fíkniefnaskuld Þá tóku þeir hana og hentu henni í horn herbergisins, skáru hana í andlitið og kýldu einnig. Þá heimtuðu þeir að fá peninga eða einhver verðmæti. Hún sagðist telja að tilefni árásarinnar væru fíkniefnaskuldir kærasta síns, en var samt ekki viss. Þau voru með skurð í andliti eftir hníf og kærastinn var einnig með skurð á fæti og sagðist hann einnig hafa verið laminn með hamri. Mennirnir tveir voru handteknir í íbúð annars þeirra daginn eftir og við leit þar fundust fartölva og gsm sími sem hafði verið tekinn af parinu. Þar að auki fundust blóðugar buxur í óhreinu taui og einnig blóðugur bolur. Lögregluþjónar fundu einnig hníf með blóðkámi í vasa eins þeirra, dúkahníf með blóðkámi í stofu íbúðarinnar og klaufhamar í gluggakistu svefnherbergis.Vinurinn væri „svo klikkaður“ Mennirnir tveir náðust á upptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi fjölbýlishússins. Eftir að þeir voru handteknir sagði annar þeirra að hinn hefði átt allan þátt í árásinni og sjálfur hefði hann einungis verið þarna til að verja stúlkuna, þar sem vinur sinn væri „svo klikkaður“. Lögreglan vildi fá mennina úrskurðaða í gæsluvarðhald og í einangrun svo þeir gætu ekki torveldað rannsókn málsins. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði báða mennina í gæsluvarðhald til mánudagsins 24. ágúst, en annar maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. Hæstiréttur staðfesti þá ákvörðun í gær. Dóm Hæstaréttar má sjá hér.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira