Fjölþjóðlegt fjör og margmenni í miðborginni Heimir Már Pétursson skrifar 9. maí 2015 20:00
Mikið var um dýrðir í miðborg Reykjavíkur í dag þegar íbúar borgarinnar af fjölbreyttum uppruna gengu saman í skrúðgöngu frá Skólavörðuholti að Ráðhúsinu. Þar gat fólk síðan kynnt sér þjóðmenningu, siði og mat hinna ýmsu þjóðarbrota á fjölmenningarhátíð borgarinnar.Vísir/Stöð 2Það viðraði vel til hátíðarhalda í höfuðborginni í dag þegar fjölmenningardagurinn var haldinn í sjöunda skipti. En talið er að fólk af 130 þjóðernum búi í Reykjavík. Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar segir það ómetanlegt fyrir fólk af ólíkum uppruna í borginni að haldnir séu fjölmenningardagar. „Það er þeirra vilji að fá að halda svona dag til að sýna okkur hvað er mikil fjölbreytni í borginni. Og við finnum að það eru ekki til fordómar á þessum degi, segir Anna.Vísir/Stöð 2Og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var í sólskinsskapi í göngunni. „Já heldur betur. Ég er ekki frá því að hitinn hafi hækkað um nokkrar gráður í dag. Ég held að sýnileiki, fjölbreytni og gleði skipti alltaf máli,“ sagði borgarstjórinn. Fjölmenningargangan endaði við ráðhúsið þar sem gaf að líta alls kyns kræsingar og kynningar frá öllum heimshornum. Bernhard, snáði um það bil sjö ára, var hæst ánægður með daginn og fannst partýið skemmtilegast og var staðráðinn í að fá sér köku.Vísir/Stöð 2Fólk allstaðar að úr heiminum býr í Reykjavík og hefur flutt þangað af ýmsum og ólíkum ástæðum. Til að mynda búa rúmlega 70 Kenýamenn í borginni. Hjónin Paul og Rosemary ramses eru meðal þeirra. Þau mættu klædd ákaflega fallegum þjóðlegum klæðnaði og buðu upp á ýmsan varning frá heimalandinu. „Við erum að styrkja skóla í Kenya. Það gengur bara mjög vel. Við erum búin að byggja leikskóla fyrir 150 börn og erum núna að byggja grunnskóla fyrir 350 börn,“ sagði Rosemary stolt. Jana er af annarri kynslóð Víetnama á Íslandi en nýstofnað félag þeirra tók í dag í fyrsta skipti formlega þátt í fjölmenningardeginum. Hún segir gott að vera Víetnami í Reykjavík. „Það er mikill munur á því og í gamla daga. Þeir fá meiri upplýsingar núna. Innflytjendur sem koma til landsins fá meiri aðstoð til að laga sig að nýju samfélagi,“ sagði Jana og bauð fréttamanni upp á gómsætan eftirrétt.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Sjá meira