Sprengingar valda nágrönnum ama Snærós Sindradóttir skrifar 4. ágúst 2015 06:00 Eins og sést er sprengt ákaflega nærri íbúabyggð. Íbúar segjast verða fyrir miklum óþægindum vegna þeirra. Fréttablaðið/Andri Marinó
Sprengingar eru hafnar í Suðurhlíðum fyrir viðbyggingu við Klettaskóla, sem áður hét Öskjuhlíðarskóli. Sprengingarnar fara fram með svokölluðu takmörkuðu byggingaleyfi. Íbúar í grennd við skólann eru ósáttir enda kærðu þeir framkvæmdina í lok árs 2013 en hafa engin svör fengið frá Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. „Þeir vita að við erum ósátt. Hulda ArnljótsdóttirVið söfnuðum undirskriftum í hverfinu og skiluðum til Dags B. Eggertssonar, þar sem 94 prósent heimila í hverfinu mótmælu þessu. Þeir hlustuðu ekki á það,“ segir Hulda Arnljótsdóttir, íbúi í næsta húsi við framkvæmdirnar. Sprengt er fyrir íþróttahúsi, tveimur innisundlaugum og annarri aðstöðu við Klettaskóla. Klettaskóli, sem áður hét Öskjuhlíðarskóli, er grunnskóli fyrir nemendur með fatlanir og sérþarfir. Nýja deiliskipulagið var kynnt íbúum á fundi miðvikudaginn 19. desember árið 2012. Þeim var gefinn frestur til mánudags, sem var aðfangadagur jóla, að skila athugasemdum. Vegna athugasemda íbúanna var ákvörðun um deiliskipulagið frestað um nokkra mánuði. Svo voru haldnir þrír fundir með íbúum, fulltrúum Klettaskóla og fulltrúum borgarinnar um málið. „Þeir gera það gjarnan þegar svona sýndarsamráð er í gangi,“ segir Hulda. Nýtt deiliskipulag var samþykkt í borgarráði 7. nóvember 2013. Áður hafði deiliskipulagið gert ráð fyrir byggingu sem var tvö þúsund fermetrum minni en sú sem nú á að byggja. „Okkur finnst þetta alveg ofboðslega íþyngjandi og skiljum ekki hvaða lögmætu ástæður eru svona rosalega ríkar að fara inn í hverfið með þessum hætti. Þetta er hverfi byggt sirka árið 1985 og þetta er vistvænt hverfi. Það er ákveðinn heildarbragur á hverfinu. Þetta eru þröngar götur með lítil hús og það loftar vel á milli. Þeir eru að raska byggðarmunstrinu þarna alveg gríðarlega.“Sprungur Skemmdir tóku að myndast í húsi Huldu fyrir tíu dögum. Þær eru víða um húsið. Fréttablaðið/Andri MarinóHulda segir að þegar sprengingar hófust hafi reglugerðir um sprengingar verið brotnar. „Fyrsta dag sprenginga brutu þeir reglugerð um sprengingar fram og til baka. Í reglugerð segir að í fyrsta lagi eigi svæðið að vera merkt, það eiga að vera skilti um að þetta sé vinnusvæði og að þar sé sprengt. Það voru engin skilti af neinu tagi.“ Hulda segir að íbúar hafi ekki vitað að sprengingar myndu byrja 21. júlí síðastliðinn. Í reglugerð standi að það eigi að láta íbúa í nærliggjandi húsum vita en það hafi ekki verið gert. Enginn hafi áttað sig á hvað hljóðmerkið sem kemur fyrir sprengingu þýddi í upphafi. „Okkur var sagt að það yrði sprengt tvisvar á dag og að við fengjum að vita klukkan hvað svo við gætum undirbúið okkur. Þeir hafa þverbrotið þetta. Þeir hafa verið að sprengja þrisvar til fjórum sinnum á dag,“ segir Hulda. Lögreglan hefur verið kölluð til þegar verktakar hafa brotið samkomulag við íbúa. „Það er erfitt fyrir íbúa að eiga við svona ofjarl eins og Reykjavíkurborg. Í þessu máli er borgin málshefjandi að þessu máli, hún sér um hönnunina á mannvirkinu, hún fær til sín framkvæmdaaðila og hún er líka eftirlitsaðili.“
Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Fleiri fréttir Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Sjá meira