Lögreglunni á Vestfjörðum barst tilkynning um kynferðisbrot Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2015 14:55 Ísafjörður. Vísir/Pjetur
Lögreglunni á Vestfjörðum barst ein tilkynning um meint kynferðisbrot í liðinni viku. Þetta kemur fram í fréttabréfi embættisins sem nær um alla Vestfirði en ekki er tilgreint hvaða dag hið meinta kynferðisbrot atvikaðist eða í hvaða byggðarlagi. Í fréttabréfinu segir að vegna rannsóknarhagsmuna sé ekki hægt að gefa nánari upplýsingar um það mál svo komnu en fréttabréfið tekur til þau mál sem lögreglan á Vestfjörðum sinnti frá 28. júlí, síðasta þriðjudag, til dagsins í dag. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar frá lögreglunni á Vestfjörðum um málið að svo stöddu. Í þessu sama fréttabréfi kemur fram að lögreglunni var tilkynnt um eina líkamsárás sem á að hafa átt sér stað á dansleik á Ísafirði aðfaranótt 1. ágúst síðastliðinn. Sömu nótt gisti ungur maður fangageymslu á lögreglustöðinni á Ísafirði eftir að hafa verið handtekinn, ölóður fyrir utan veitingastað í bænum. Hann var látinn sofa úr sér vímuna.Unnu skemmdir á íbúðarhúsi Þá sömu nótt var lögreglu tilkynnt um að hópur gangandi fólks hafi lamið íbúðarhús eitt og mannlausa bifreið sem þar stóð fyrir utan, nánar til tekið við Aðalstræti á Ísafirði. Tilkynningin barst eftir að fólkið hafði farið af vettvangi. Með þessu háttalagi var íbúanum og bifreiðareigandanum valdið skaða. En hurð á sólpalli var brotin og tvær beyglur mynduðust á bifreiðinni. Þeir sem búa yfir upplýsingum um hvaða fólk var hér um að ræða er beðið um að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 444 0400.Mjög veikur eftir að hafa tekið inn MDMA Aðfaranótt 2. ágúst var lögregla og sjúkraflutningamenn kallaðir að gistihúsi á Ísafirði þar sem ungur ferðamaður var ósjálfbjarga og virtist mjög veikur. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði og fékk viðeigandi aðhlynningu þar. Í ljós kom að maðurinn hafði tekið inn fíkniefnið MDMA en lögreglan á Vestfjörðum segir það vera stórhættulegt efni og tekur fram að öll fíkniefnaneysla sé dauðans alvara.Köstuðu út ætluðum fíkniefnum Um miðjan dag þann 2. ágúst stöðvuðu lögreglumenn ökumann fólksbifreiðar á Ísafirði. Grunur hafði vaknað um að ökumaður væri ekki í ástandi til að aka. Sá grunur reyndist á rökum reistur þegar ökumaðurinn lét í té þvagsýni. Í bifreiðinni fundust fíkniefni og neysluáhöld, eins höfðu farþegar, sem voru fjórir ungir menn, kastað út úr bifreiðinni fíkniefnum, nánar til tekið ætluðu amfetamíni. Lögreglumenn sáu það gerast og var lagt hald á efnið sem og það sem fannst við leit í bifreiðinni. Ökumaður og farþegarnir fjórir voru allir handteknir en þeim sleppt lausum að yfirheyrslum loknum. Fékk ökumaðurinn ekki að halda akstri áfram. Lögreglan á Vestfjörðum vann að fjórum öðrum fíkniefnamálum í liðinni viku. Húsleitir voru framkvæmdar í bifreiðum og í tveimur húsum. Lítilræði af fíkniefnum fundust við rannsókn þessara þessum fimm mála, aðallega kannabisefni og amfetamín.8 ungmenni ekki með aldur Aðfaranótt 3. ágúst hafði lögreglan afskipti af alls 8 ungmennum sem voru á dansleik á Ísafirði án þess að hafa haft aldur til að vera þar inni. En aldurstakmark var 18 ár. Ýmist var um að ræða ungmenni sem höfðu framvísað röngum eða fölsuðum skilríkjum eða komist inn á dansleik með öðrum hætti. Þessi mál eru sögð til skoðunar meðal annar með tilliti til dyravörslunnar.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira