Frakkinn ungi einfari sem nánast lokaði sig af í heimi tölvuleikja Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. nóvember 2015 11:22 Líklegast er talið að Florian Maurice Franco Cendre hafi orðið úti. mynd/loftmyndir.is
Krufning á líki Florians Maurice Franco Cendre, fransks ríkisborgara sem fannst látinn í Laxárdal í Nesjum í ágúst síðastliðnum, leiddi ekki í ljós hvers vegna hann lést. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er þó talið líklegast að hann hafi orðið úti skömmu eftir að hann kom til Hafnar í Hornafirði þann 2. október 2014. Þá bendir ekkert til þess að lát hans hafi borið að með saknæmum hætti.Vitni sá bakpoka í dalnum sem ekki hefur fundist Greint hefur verið frá því að vitni hafi séð mann ganga inn dalinn sama dag og Florian kom til Hafnar og passaði lýsing vitnisins við hann. Sagði vitnið að maðurinn hefði verið með bakpoka en um rúmum mánuði síðar átti vitnið leið um dalinn og sá þá bakpokann um 20 metra ofan við vegslóðann rétt innan við Þverá. Taldi vitnið að einhver hefði lagt bakpokann frá sér og farið í göngu og setti hann því ekki í samhengi við manninn sem hann sá ganga inn dalinn mánuði fyrr. Við rannsókn lögreglu fannst bakpokinn ekki og er því ekki víst að hann hafi verið í eigu Florians. Líklegt má telja að Þverá hafi hrifsað pokann til sín þar sem farvegur hann hefur breyst mikið á þessum slóðum.Lét fjölskylduna ekki vita af Íslandsferðinni „Við vitum í raun ekkert af hverju hann var hér og munum ekki komast að því nema nýjar vísbendingar komi fram,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hann segir að Florian hafi til að mynda ekki látið fjölskylduna sína vita af því að hann væri á leið hingað til lands. Hann hafi verið mikill einfari og nánast lokað sig af í heimi tölvuleikja.
Tengdar fréttir Líkfundur í Laxárdal: Kannað hvort Frakkans hafi verið saknað í heimalandinu Lögregla hefur tilkynnt fjölskyldu hins látna um að hann sé fundinn. 2. september 2015 15:19 Líkfundur í Laxárdal: Vita ekkert um ferðir Frakkans eftir komu hans til Hafnar í Hornafirði Lögreglan á Suðurlandi og biður almenning um að aðstoð við að upplýsa um ferðir Frakkans sem fannst látinn í Laxárdal í Nesjum í ágúst. 9. september 2015 09:13 Koma fjölskyldu Florians til Íslands varpaði frekara ljósi á líkfundarmálið í Laxárdal Ekkert sem bendir til þess að hann hafi átt sér óvildarmenn eða flæktur í eitthvað misjafnt. 15. október 2015 09:15 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Fleiri fréttir Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Sjá meira
Líkfundur í Laxárdal: Kannað hvort Frakkans hafi verið saknað í heimalandinu Lögregla hefur tilkynnt fjölskyldu hins látna um að hann sé fundinn. 2. september 2015 15:19
Líkfundur í Laxárdal: Vita ekkert um ferðir Frakkans eftir komu hans til Hafnar í Hornafirði Lögreglan á Suðurlandi og biður almenning um að aðstoð við að upplýsa um ferðir Frakkans sem fannst látinn í Laxárdal í Nesjum í ágúst. 9. september 2015 09:13
Koma fjölskyldu Florians til Íslands varpaði frekara ljósi á líkfundarmálið í Laxárdal Ekkert sem bendir til þess að hann hafi átt sér óvildarmenn eða flæktur í eitthvað misjafnt. 15. október 2015 09:15