Ráðherra um fráfarandi stjórnarformann RÚV: „Mikil eftirsjá að honum“ Birgir Olgeirsson skrifar 2. nóvember 2015 19:06 Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir „
Hann sagði mér frá þessu í morgun að hann væri að hugleiða þetta,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, um Ingva Hrafn Óskarsson sem hefur sagt sig úr stjórn Ríkisútvarpsins en Ingvi Hrafn gegndi stjórnarformennsku þar. „Mér kemur þetta í sjálfu sér ekki á óvart. Eins og hann tekur fram í yfirlýsingu sinni er hann störfum hlaðinn sem lögmaður og hefur þurft að setja mikinn tíma í þessi verkefni frá því hann tók þarna við. Ég hef fullan skilning á því að hann þurfi að forgangsraða sínum tíma, eins og hann segir í yfirlýsingu sinni. Aftur á móti er mikil eftirsjá að honum úr þessu starfi og ég veit að hann og útvarpsstjórinn hafa átt mjög gott samstarf. Ingvi Hrafn hefur verið vakinn og sofinn yfir þessu verkefni eins og ég vissi að hann myndi verða þegar hann var valinn,“ segir Illugi um þessi tíðindi. „Ég vil færa fram þakklæti mitt til hans fyrir vel unnin störf. Ég tel að hann, stjórnin og starfsmenn Ríkisútvarpsins hafi unnið alveg frábært starf við að ná tökum á rekstri Ríkisútvarpsins og náð eftirtektarverðum árangri.“ Hann segir næsta verkefni á dagskrá að velja nýjan stjórnarformann. „Ég er svo sem ekkert byrjaður að hugleiða það sérstaklega en það er það sem bíður okkar,“ segir Illugi. Spurður hvort það sé eitthvað sem muni gerast á næstu vikum segir hann enga ástæðu til að draga það neitt sérstaklega en segir þó ekkert ákveðið í þeim efnum á þessari stundu.
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira