Ásdís hvetur til kurteisi: Þreytt á að heyra að líkami sinn sé svo stór og karlmannlegur Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. ágúst 2015 17:00 Ásdís hvetur fólk til að hætta að gera athugasemd við útlit annarra. Vísir/Valli „
Ein lítil athugasemd getur kveikt bál úr neista af óöryggi sem við höfum ekki hugmynd um. Sem betur fer hefur ævi af þessum athugasemdum gert húð mína nægilega þykka til að taka þeim en ókurteisin fer enn í taugarnar á mér,“ skrifar Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari í einlægum pistli á Facebook síðu sína í dag. Þar skrifar hún um hvernig fólk hafi alla hennar ævi kallað hana karlmannlega og segir það hafa haft mikil áhrif á sjálfsmynd óharðnaðrar unglingsstúlku. Ásdís segist ekki skilja hvers vegna líkami hennar sé talinn „of karlmannlegur“ og spyr hvort það sé einungis vegna þess að hún sé vöðvastælt. „Ég var ekki með hár í andlitinu eða einhvern annan ókvenlegan hárvöxt. Ég var ekki með Adams epli og andlitsdrættir mínir voru kvenlegir og mjúkir. Vissulega voru brjóstin á mér lítil en ég átti það sameiginlegt með fjölda annarra kvenna sem voru ekki taldar karlmannlegar.“ Færslu Ásdísar má sjá neðst í fréttinni.Ásdís er mikil keppnismanneskja.Vísir/AFPLærði að elska líkamann eins og hann er Athugasemdir um að hún sé ekki kvenleg og viðbrögð eins og: „Vá hvað þú ert stór!“ hafi sært hana meira en nokkur ef til vill tók eftir þegar hún var unglingur. Hins vegar hafi afstaða hennar til eigin líkama breyst eftir því sem hún þroskaðist. „Ég lærði að færa áhersluna á hvernig líkaminn minn ætti að líta út og á það að horfa á hvað ég gæti gert með honum því að það er eitthvað sem ég hef stjórn á. Líkaminn minn hefur kannski vöðva sem eru of stórir að mati sumra jafnvel þó öðrum þyki það fjandi heitt en ég elska hann samt sem áður.“ Líkami Ásdísar hefur gert henni kleift að taka þátt í níu stórmótum, þar á meðal á Ólympíuleikunum. Auk þess segist hún þakklát fyrir að vera heilbrigð og í góðu formi. „Þessir stóru handleggir gera mér kleift að bera allt úr bílnum í einni ferð,“ segir hún. „Þessar breiðu axlir hafa borið veika eða slasaða liðsfélaga í gegnum flugvelli, íþróttahallir og hótel. Sterka bakið mitt getur ekki bara borið mikinn þunga heldur gerir það mig mjög vinsæla meðal vina og ættingja þegar kemur að flutningum og ég get pakkað öllu sem ég þarf í bakpokann minn af því að ég veit að ég get borið þungann. Þökk sé stóru lærunum mínum (og keppnisskapinu) missi ég aldrei rétt svo af strætó eða lest. Þau hjálpa mér líka að komast hvert sem er á stuttum tíma á hjólinu mínu. Verði ég svo heppin að eignast börn einn daginn mun ég geta borið þau, elt þau og leikið við þau. Þetta eru hlutirnir sem skipta máli í lífinu.“Hissa á að fólk sjái ekki dónaskapinn Ásdís hvetur fólk til þess að hætta að dæma aðra eftir útliti og sérstaklega að hætta að gera athugasemdir við líkamsvöxt annarra. „Allir eiga rétt á eigin skoðun en suma hluti er betra að sleppa því að segja. Enn í dag kemur fullkomlega ókunnugt fólk upp að mér og byrjar að tala við mig um hversu stór ég sé, bara svona ef ske kynni að ég vissi það ekki. Þetta gerðist bara um daginn þegar ég var að synda í vatninu hérna í Zurich með vini mínum. Ég hef aldrei séð jafn opinmynntan einstakling og vinkonu mína þegar þetta fólk kom til mín sérstaklega til að færa mér fréttir af stærð minni.“ Hún er hissa á að fólk skuli ekki sjá hversu ótrúlega dónaleg þessi hegðun er og veltir því fyrir sér hvort það sama myndi gerast ef hún væri í mikilli yfirþyngd eða hættulega grönn. „Svo næst þegar þú sérð einhvern sem þér finnst of feitur, of horaður, of vöðvastæltur eða eitthvað þar á milli - mundu bara að það er engin þörf á að segja þína skoðun og þessi manneskja skarar örugglega fram úr á einhverju sviði sem þú hefur ekki hugmynd um.“Sorry some technical difficulties here, lets try this again. ;) Here are my opinions on #BodyIssuesPosted by Ásdís Hjálmsdóttir on Sunday, August 16, 2015
Tengdar fréttir Tvö gull hjá Ásdísi | ÍR vann stigakeppnina ÍR-ingar unnu stigakeppnina á 89. Meistaramótinu í frjálsíþróttum en Hafdís Sigurðardóttir vann besta afrekið. 26. júlí 2015 16:30 Ásdís vann spjótkastið | Ísland í fimmta sæti Íslenska frjálsíþróttalandsliðið fór ágætlega af stað á fyrsta keppnisdegi 2. deildar Evrópumótsins í frjálsum, en mótið fer fram í Búlgaríu. Ísland er í fimmta sæti af átta liðum í afar sterkri deild. 20. júní 2015 20:09 Ásdís: Hélt að ferillinn væri búinn Spjótkastdrottningin lenti í slysi á æfingu fyrir nokkrum vikum en hún vann þrenn gullverðlaun á Meistaramótinu. 26. júlí 2015 17:01 Mest lesið Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Lífið Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Gagnrýni Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Lífið Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Lífið Felix kveður Eurovision með tárum Lífið Quarashi aftur á svið Lífið Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Lífið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Lífið Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlist Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Lífið Fleiri fréttir „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið „Það má ekki gleyma því af hverju við vorum að þessu“ Allt frá húðflúri yfir í dót úr skúrnum hans Steinda Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Sjá meira
Tvö gull hjá Ásdísi | ÍR vann stigakeppnina ÍR-ingar unnu stigakeppnina á 89. Meistaramótinu í frjálsíþróttum en Hafdís Sigurðardóttir vann besta afrekið. 26. júlí 2015 16:30
Ásdís vann spjótkastið | Ísland í fimmta sæti Íslenska frjálsíþróttalandsliðið fór ágætlega af stað á fyrsta keppnisdegi 2. deildar Evrópumótsins í frjálsum, en mótið fer fram í Búlgaríu. Ísland er í fimmta sæti af átta liðum í afar sterkri deild. 20. júní 2015 20:09
Ásdís: Hélt að ferillinn væri búinn Spjótkastdrottningin lenti í slysi á æfingu fyrir nokkrum vikum en hún vann þrenn gullverðlaun á Meistaramótinu. 26. júlí 2015 17:01