Óska eftir skýrslu frá skipstjóra Herjólfs vegna ammóníaksleka Birgir Olgeirsson skrifar 30. október 2015 13:32 Flytja má hættuleg efni með Herjólfi að uppfylltum tilteknum skilyrðum og að fengnu leyfi Samgöngustofu. vísir/óskar p. friðriksson
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur óskað eftir skýrslu frá skipstjóra Herjólfs vegna ammóníaksleka sem kom að tanki sem verið var að flytja í Herjólf í Vestmannaeyjum síðdegis á miðvikudag. Atvikið átti sér stað um það leyti sem hleypa átti bílum um borð í skipið. Það var í kjölfarið rýmt en slökkvilið í Vestmannaeyjum var kallað út og voru fimmtán reykkafarar sendir inn í skipið. Sjúkraflutningamenn voru einnig kallaðir á vettvang.Á vef Eyjafrétta kom fram að menn töldu ammóníakstankinn tómann. Þegar verið var að flytja hann í skipið brotnaði stúturinn á tanknum og kom þá í ljós að hann var ekki tómur. Fylltist skipið af ammóníakslykt og voru nokkrir farþegar komnir niður í káetur að sögn Ragnars Þórs Baldvinssonar, slökkviliðsstjóra í Vestmannaeyjum.Flutningur hættulegra efna leyfilegur með Herjólfi Hafa margir gagnrýnt að flytja átti jafn hættulegt efni og ammoníak með Herjólfi og óskaði Vísir eftir svörum frá Samgöngustofu um hvort það væri leyfilegt. Samgöngustofa segir flutning hættulegra efna með farþegaskipum leyfilegan að uppfylltum tilteknum skilyrðum og að fengnu leyfi Samgöngustofu. Um skilyrðin er fjallað í reglugerð nr. 666/2001 sem innleiðir alþjóðlegar reglur um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum. Skipstjóra ber enn fremur að fullvissa sig um að slíkur farmur sé rétt merktur og frágenginn samkvæmt svokölluðum IMDG kóða sem fjallar um flutning hættulegra efna. Í svari samgöngustofu kom fram að möguleg rannsókn á samgönguatvikum sé á forræði Rannsóknarnefndar samgönguslysa.Hafa óskað eftir skýrslu Jón Arilíus Ingólfsson er rannsóknastjóri sjóslysasviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa en hann segist hafa í morgun óskað eftir skýrslu frá skipstjóra Herjólfs vegna atviksins á miðvikudag. Hann segir sjóslysasvið rannsaka atvikið með það að markmiði að tryggja að það komi ekki fyrir aftur. „En ef eitthvað sakhæft athæfi á sér stað þá komum við ekki nálægt því,“ segir Jón Arilíus. Hann segir slík mál send lögreglu en þetta tiltekna mál sé ekki alls ekki komið í þann farveg. Einungis sé verið að rannsaka hvað olli þessum leka og hvernig sé hægt að koma í veg fyrir að það gerist aftur.Ammóníak getur verið banvænt mönnum Vísir heyrði í Ragnari Þór Baldvinssyni, slökkviliðsstjóra Vestmannaeyja, segist vona að álíka atvik muni ekki eiga sér stað aftur. Hann segist ekki vilja hugsa þá hugsun til enda ef lekans hefði orðið vart úti á sjó. „Það hefði ekki verið gott, með alla klefa fulla af fólki.“Á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að ammóníak veldur óþægindum og áreiti í öndunarkerfi manna og augum og getur verið skaðlegt og jafnvel banvænt ef um veruleg og langvarandi áhrif er að ræða.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira