Foreldri með forsjá eftir brot gegn barni Snærós Sindradóttir skrifar 22. júlí 2015 07:00 Halldóra segir að barnaverndanefndir geti tekið ákvarðanir um tímabudna forsjársviptingu sem varir í tvo mánuði. vísir/vilhelm
Foreldrar sem hafa brotið alvarlega af sér halda stundum forsjá barna sinna í óþökk barnanna. Á laugardag fjallaði Fréttablaðið um mál Einars Hildarsonar, en móðir hans slasaði hann lífshættulega í stunguárás. Í viðtalinu gagnrýndi hann þá staðreynd að móðir hans hefði haft forræðið yfir honum í rúm tvö ár eftir atvikið. „Þetta tekur alltaf ákveðinn tíma en þarna getur verið að sá tími hafi verið lengri en efni stóðu til,“ segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Einar lýsir því í viðtalinu að móðir hans, sem vistuð var á réttargeðdeildinni að Sogni, hafi þurft að skrifa undir umsókn hans í framhaldsskóla og hafi haft lögbundinn rétt á upplýsingum um líf hans.Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir„Ég geri mér grein fyrir því að tvö ár í svona ferli eru langur tími. Atburðurinn er það alvarlegur að það er mjög eðlilegt að fólk spyrji sig af hverju foreldri sé ekki svipt forsjá um leið,“ segir Halldóra. Hún segir að ef samþykki foreldris liggur fyrir um að barn skuli vistað utan heimilis sé síður gripið til forsjársviptingar. „Það getur verið að engum hafi fundist það neitt sérstaklega áríðandi vegna þess að það hafi ekki reynt á þolmörk þess hver væri með forsjá og ekki með forsjá. Þrátt fyrir allt er verið að leita að samvinnu fólks um þær ákvarðanir sem þarf að taka í lífi barna.“ Á endanum fengu móðuramma og afi Einars forsjá yfir honum. „Hins vegar eru margir foreldrar sem hafa framið mjög alvarlega glæpi sem halda forsjá barna sinna í ákveðinn tíma, en þetta var líklega óþarflega langt.“ Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að tímabundnar forsjársviptingar séu leið til að kanna hvort barn geti farið aftur á heimili sitt. „Árið 2002 var gerð sú breyting að svokallað frumúrskurðarvald í barnaverndarmálum fluttist til dómstólanna. Eftir það hafa barnaverndarnefndir enga lagaheimild til að úrskurða í svona stórum málum.“ „Barnaverndarnefndir geta tekið ákvarðanir um tímabundna forsjársviptingu sem varir í tvo mánuði. Á þessum tveimur mánuðum á nefndin að leggja mat á hvort það sé barninu fyrir bestu að vera skilað aftur til foreldris eða hvort það eigi að svipta foreldrið forsjá,“ segir Bragi.
Tengdar fréttir Hagamelsmorðið hreyfði við Barnavernd Viðbragðsteymi vegna voveiflegra dauðsfalla barna var ekki komið á laggirnar þrátt fyrir vilja Braga 21. júlí 2015 07:00 Mamma reyndi að drepa mig Einar Zeppelin Hildarson komst lífshættulega slasaður undan móður sinni eftir stunguárás. Systir hans lést í árásinni. 18. júlí 2015 09:00 Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira
Hagamelsmorðið hreyfði við Barnavernd Viðbragðsteymi vegna voveiflegra dauðsfalla barna var ekki komið á laggirnar þrátt fyrir vilja Braga 21. júlí 2015 07:00
Mamma reyndi að drepa mig Einar Zeppelin Hildarson komst lífshættulega slasaður undan móður sinni eftir stunguárás. Systir hans lést í árásinni. 18. júlí 2015 09:00