Skilorðsbundinn fangelsisdómur fyrir heimilisofbeldi á Suðurnesjum Bjarki Ármannsson skrifar 27. janúar 2015 18:00 Frá Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Hari
Karlmaður hlaut í dag eins mánaðar skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast á þáverandi kærustu sína á Suðurnesjum í febrúar árið 2013. Jafnframt er honum gert að greiða allan sakarkostnað. Er honum gert að sök að hafa slegið konuna í andlitið, brotið glerborð á heimili hennar og hent farsíma hennar í jörðina með þeim afleiðingum að hann eyðilagðist. Lögregla á Suðurnesjum var kölluð að heimili parsins seint um nótt árið 2013 vegna tilkynningar um heimilisofbeldi. Konan var þá komin í aðra íbúð með yngri son sinn og sagði lögreglu að kærasti hennar hefði lamið sig. Í greinargerð lögreglu segir að maðurinn hafi greinilega verið undir áhrifum áfengis þegar hann var tekinn tali, en þó viðræðuhæfur. Hann sagði þau tvö hafa farið að rífast, hann hafi sparkað í borðið og brotið það óvart en kærasta hans hafi við það slegið hann nokkrum sinnum. Hann hafi þá orðið mjög reiður og slegið hana á móti tvisvar til þrisvar sinnum. Hann var í framhaldi handtekinn og færður á lögreglustöð. Fram kemur í dómsorðum að konan hlaut meðal annars mar á eyra og á hnakka og bólgu yfir gagnauga eftir árásina. Maðurinn var sömuleiðis með blæðandi áverka á höfði eftir kvöldið sem hann sagði vera eftir konuna. Hún sagðist fyrir dómi örugglega hafa reynt að verja sig en að það væri ósatt að hún hefði slegið til hans að fyrra bragði.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira