Misskipting hefur áhrif á komandi kjaraviðræður sveinn arnarsson skrifar 5. febrúar 2015 09:15 Líklega stefnir í hart í viðræðum atvinnulífsins og launþega á komandi vikum. Telja forsvarsmenn launþega ríkið hafa sýnt á spilin og að svigrúm sé til launahækkana. Myndin er frá kröfugöngu tónlistarkennara á síðasta ári. Fréttablaðið/Ernir
Vinnumarkaður Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, og Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segja mikilvægt að vinda ofan af þeirri misskiptingu auðs sem sé staðreynd í íslensku samfélagi. Þeir gagnrýna samtök atvinnulífsins sem og stjórnvöld fyrir að reyna ekki að minnka bilið milli fátækra og ríkra í þjóðfélaginu.Aðalsteinn Árni BaldurssonÍ svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Árna Páls Árnasonar um eignir og eigið fé ríkustu Íslendinganna kemur í ljós að árið 2013 átti ríkasta eitt prósent landsmanna 21,9 prósent alls eigin fjár í landinu. Heildarupphæð eigin fjár ríkasta eins prósents landsins var það ár 483 þúsund milljónir króna. Líkt og komið hefur fram er líklegt að þessar tölur séu vanáætlaðar því að hlutabréf eru talin á nafnvirði í þessum gögnum. Líklegt þykir að mörg þessara bréfa séu mun verðmætari á markaði og því gætu fengist mun hærri upphæðir fyrir bréfin verði þau seld. Því er líklegt að ríkustu Íslendingarnir séu mun ríkari en gefið er til kynna í svari fjármálaráðherra. Hæst fór eigið fé ríkasta prósents landsins árið 2010 og var þá 28,3 prósent af heild, og hafði þessi hópur því aldrei haft jafn mikið milli handanna samanborið við aðra íbúa landsins. Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík, segir þessar tölur sláandi en samt sem áður komi þær sér ekki á óvart. „Forystumenn þessarar ríkisstjórnar eiga sjálfir alveg fyrir kók og pylsu og því þykir mér ekki líklegt að þessi ríkisstjórn beiti sér til að jafna bilið milli fátækra og ríkra á þessu kjörtímabili. Það er líka mjög erfitt að berjast fyrir fólk með um 200 þúsund krónur á mánuði og hitta fyrir í samtökum atvinnulífsins einstaklinga með sínar tvær milljónir á mánuði, skilningur fyrir hækkun lægstu launa er bara ekki nægilega mikill.“Gylfi ArnbjörnssonGylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir ríkisstjórnina hafa haft tækifæri til þess að jafna þetta bil. „Það er svolítið súrt að sjá það að á meðan sjúklingar þurfa að greiða hærri gjöld og taka enn meiri þátt í kostnaði þá horfum við upp á það að auðlegðar- og auðlindaskattur er ekki nýttur til að komast til móts við þá verst settu í þjóðfélaginu. Þetta er ónýtt tækifæri til að jafna bilið og skapa meiri sátt í samfélaginu.“ Bæði Gylfi og Aðalsteinn Árni eru sammála um það að komandi kjaraviðræður gætu orðið mjög erfiðar. Átök á vinnumarkaði verði æ harðari og kröfur launafólks eru skýrar, að hækka lægstu laun þannig að hægt sé að lifa af þeim mannsæmandi lífi. „Það er alveg ljóst að ríkið hefur sýnt örlítið á spilin, það er augljóst svigrúm til launahækkana og lægst launaða fólkið á ekki að þurfa að bera byrðar þessa þjóðfélags enn og aftur,“ segir Aðalsteinn.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira