Myndavélar settar upp við sundlaugina í Selárdal: „Það eru allir ósáttir“ Birgir Olgeirsson skrifar 5. febrúar 2015 15:00 Sundlaugin í Selárdal. Friðrik Halldórsson „
Myndavélarnar eru til að benda mönnum á að ef þeir fara ekki eftir reglum þá höfum við upplýsingar um þá,“ segir Ellert Árnason, skrifstofustjóri hjá Vopnafjarðarhreppi, um eftirlitsmyndavélar sem hafa verið settar upp við sundlaugina í Selárdal. Sundlaugin tilheyrir Vopnafjarðarhreppi og er um tólf kílómetra frá Vopnafjarðarkauptúni. Hún var vígð árið 1950 og var fremur frjáls aðgangur að henni en nú er svo komið að settar hafa verið upp eftirlitsmyndavélar við laugina til að tryggja að enginn fari í hana utan opnunartíma þegar enginn sundlaugarvörður er á vakt. Til stendur að girða laugina af í vor til að tryggja að enginn fari eftirlitslaus í laugina þegar enginn er vörðurinn, þá sérstaklega börn, en borið hafði á umferð utan opnunartíma þar sem áfengi var við hönd.Hópur kærður fyrir sóðaskap „Í gegnum tíðina hafa ekki verið nein stór vandamál en það hefur komið fyrir að unglingahópar hafi komið hérna að næturlagi og skilið eftir sig bjórdósir en það er ekki hægt að kalla það sóðaskap,“ segir Ellert en fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði frá því árið 2012 að Vopnafjarðarhreppur hefði kært hóp manna fyrir sóðaskap í sundlauginni í Selárdal. Var aðkoman ljót eftir drykkjulæti hópsins og þurfti að fresta skólasundi í annað sinn á skömmum tíma um haustið 2012. Mikil óánægja er á Vopnafirði vegna ákvörðunar um að girða laugina af. „Það eru allir ósáttir við að fá ekki að nota hana sem náttúrulaug eins og aðrar náttúrulaugar á landinu,“ segir Ellert en nýlega þurfti að setja upp klórstöð við laugina sem var tugmilljóna framkvæmd og þá bætist annað eins við vegna eftirlitsmyndavéla og girðingarinnar.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira