Mál fyrir Hæstarétti hafa aldrei verið fleiri fanney birna jónsdóttir skrifar 5. febrúar 2015 08:30 Millidómstig myndi létta álagið á Hæstarétt verulega. vísir
Álagið á Hæstaréttardómurum hefur síður en svo minnkað frá því tekin var ákvörðun um að fækka þeim, eftir að þeim var fjölgað í kjölfar efnahagshrunsins. Dómurum við Hæstarétt var fjölgað um þrjá árið 2011 og voru þá tólf, en hefur nú aftur verið fækkað niður í níu. Á síðasta ári fjölgaði skráðum málum við Hæstarétt um 36 og var fjöldi þeirra því alls 111 eða 13 prósentum fleiri en meðaltal áranna 2008 til 2013. Skráð ný mál hafa aldrei verið fleiri. Kærum í einkamálum til Hæstaréttar fjölgaði verulega og voru 96, eða um 33 prósent. Þá hefur dæmdum málum við réttinn einnig fjölgað, voru í fyrra 764 sem er 10 prósentum fleiri en meðaltal áranna 2008 til 2013. Ódæmd sakamál eru 30 prósentum fleiri en meðaltal áranna 2010 til 2013, eða 74 mál, en fjöldi ódæmdra einkamála í árslok var svipaður og undanfarin ár, eða 133 mál. Frá því 1. mars í fyrra var dómurum við réttinn fækkað úr tólf í níu, en þeim hafði verið fjölgað vegna fyrirsjáanlegs álags á Hæstarétt. Boðað hefur verið nýtt frumvarp um millidómstig sem kæmi óhjákvæmilega til með að létta álaginu af Hæstarétti. Í kjölfarið myndi dómurum þar fækka. Innanríkisráðuneytið skipaði nefnd undir forystu Kristínar Edwald hæstaréttarlögmanns. Aðrir nefndarmenn eru Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við Háskóla Íslands, og Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari. Þessari nefnd var ætlað að koma með tillögu að því hvernig slíku dómstigi yrði komið á laggirnar. Nefndin hefur ekki enn skilað af sér áliti. Nefndin var upphaflega skipuð í ágúst árið 2013 og stefnt var að því að hægt yrði að leggja fram frumvarp byggt á tillögum hennar í mars árið 2014. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu er gert ráð fyrir að tillögunni verði skilað í lok þessa mánaðar en eftir það þarf að taka ákvörðun um hvort tillagan fari í umsögn. Vonast er til þess að hægt verði að leggja fram frumvarp um millidómstig á þessu þingi en fresturinn til að leggja fram frumvörp er til 31. mars.
Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Sjá meira