Lagði hníf að hálsi barnsmóður fyrir framan tveggja ára barn þeirra Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2015 15:12 Þá hótaði ákærði konunni með því að leggja hníf upp að hálsi hennar og segjast ætla að skera höfuðið af ef hún hlýddi honum ekki. Vísir/Getty
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárásir og hótanir gagnvart þáverandi eiginkonu sinni og ungu barni þeirra. Er maðurinn sakaður um að hafa sparkað í andlit konunar þar sem hún hélt á tveggja ára gömlum sini þeirra í fanginu. Þá lagði hann hníf upp að hálsi hennar og hótaði að skera höfuð hennar af gerði hún eitthvað rangt. Ákært er fyrir tvær líkamsárásir á heimili þeirra í Reykjavík. Sú fyrri í ágúst 2012 þegar maðurinn á að hafa dregið konu sína inn á baðherbergi þeirra þar sem hann reyndi að ýta höfði hennar ofan í klósett. Þá ógnaði hann henni með hnífi og kastaði hnífnum á eftir konunni er hún flýði útaf heimilinu og leitaði aðstoðar hjá nágrönnum. Síðari líkamsárásin varð ári síðar og er ákært fyrir líkamsárás og hótanir gagnvart konunni en einnig brot á barnaverndarlögum. Á maðurinn að hafa veist að konunni í hjónaherbergi þeirra þar sem hún lá með tveggja ára gamalt barn þeirra. Sparkaði hann í andlit konunnar og læri auk þess að slá hana í andlit og maga. Þá hótaði ákærði konunni með því að leggja hníf upp að hálsi hennar og segjast ætla að skera höfuðið af ef hún hlýddi honum ekki. „Með framangreindri háttsemi beitti ákærði son sinn ógnunum og sýndi honum yfirgang og ruddalegt athæfi,“ eins og segir í ákærunni. Afleiðingar árásarinnar á konuna voru tognun í hálshrygg, bólga og eymsli á kinn, mar á vinstra herðablað og þreifieymslu á læri. Er þess krafist að ákærði verðir dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Maðurinn á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Þá krefst fyrrverandi kona hans 900 þúsund króna í skaða- og miskabætur.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Sýndu mynd af líki hins látna fyrir slysni Ragnar Þór segist ekki hafa haft neitt með skilaboðin til Guðmundar Inga að gera Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Sjá meira