Kókaínsmyglið í Sundahöfn enn óupplýst Snærós Sindradóttir skrifar 5. ágúst 2015 08:00 Ólafur William Hand segir skipverja saklausa uns sekt sé sönnuð. Skipið sigli áfram þar til upplýsingar berist frá lögreglu. vísir/gva „
Við vonum auðvitað að þetta séu ekki okkar menn sem voru að standa í þessu,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Í lok júní fundust tæp þrjú kíló af kókaíni í gámi í Sundahöfn sem komið hafði með skipi Eimskips, Skógafossi. Skipverjar voru allir yfirheyrðir af lögreglu en enginn þeirra var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Enginn hefur stöðu grunaðs manns sem stendur. Skipið er nú á siglingu og ætti að vera í Argentíu á Nýfundnalandi í dag. Aðspurður hvort það sé ekki íþyngjandi fyrir skipverja að allir og enginn sé grunaður segir Ólafur: „Það hlýtur að vera íþyngjandi ef þú ert sekur. En ef þú ert saklaus get ég ekki ímyndað mér að það hafi nein áhrif á þig.“ Hann segir að mikill fjöldi fólks komi að skipinu og hafi aðgang að farmi þess í hverri höfn. „Það er rosalega erfitt að benda á áhafnarmeðlim nema þú sért með óyggjandi sannanir fyrir því. Það er ekki öfundsvert fyrir lögregluna að rannsaka mál sem er svona óljóst.“ Aldís B. Hilmarsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn í fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að málið sé enn í rannsókn. Aðspurð hvort málið sé tengt stærra fíkniefnamáli eða hafi verið einangrað smygl segir Aldís: „Við erum ekki komin með af eða á varðandi það.“UppfærtÍ upphafi stóð að Skógafoss væri statt í Argentínu. Það er aftur á móti statt í Argentíu, sem er 450 manna bær á Nýfundnalandi. Það leiðréttist hér með.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira