Frásögn starfsmanna ólík Ólafs Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 31. júlí 2015 08:00 Upplýsingar starfsmanna Þingvallaþjóðgarðs stangastá við orðyfirmanns þeirra. Fréttablaðið/GVA „
Viðbrögð Ólafs vekja mikil vonbrigði en til þessa hef ég átt gott samstarf við hann og ráðlagt honum og Þingvallanefnd heilt um málefni þjóðgarðsins. Þar byggi ég m.a. á áratugareynslu af rannsóknum í Þingvallavatni, sem enn standa yfir,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, en Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður sagði í Fréttablaðinu í gær að Hilmar færi með rangt mál þegar hann staðhæfði að skólpvatn sytri út í umhverfið úr þróm í þjóðgarðinum og á vatnasviði Þingvallavatns. „Fyrir aðeins rúmri viku fór ég á Þingvöll ásamt fræðimönnum sem þekkja vel til náttúru svæðisins gagngert til að spá í fráveitumál. Þar var rætt við tvo starfsmenn Ólafs Arnar um fráveitumál á Hakinu, við þjónustumiðstöðina á Leirum og fleiri stöðum. Þær upplýsingar sem starfsmennirnir veittu um ástand mála staðfesta mitt mál og stangast á við ávirðingar Ólafs Arnars,“ segir Hilmar. Hilmar segir enn fremur að viðbúið sé að á álagstímum, þegar mikill fjöldi heimsækir þjóðgarðinn, sytri skólpvatn út í umhverfið, enda séu langflest kerfin á staðnum sett upp með það í huga, samkvæmt þeim gögnum sem hann hefur undir höndum um fyrirkomulag við rotþrær, syturlagnir og tæmingu þróa. Hilmar ítrekar þá skoðun sína, sem Ólafur segir vera aulabrandara, að á meðan fráveitukerfi í þjóðgarðinum séu ekki afkastameiri en gögn bendi til sé eðlilegt að gestir hlífi þjóðgarðinum eftir bestu getu. Nánar má lesa um afstöðu Hilmars í aðsendri grein hans á visir.is.
Tengdar fréttir Þingvallavatn – viðkvæmur viðtaki Fjörleg umræða hefur staðið yfir að undanförnu um erlenda ferðamenn og álag af þeirra völdum á náttúru, menn og mannvirki. Gróður og jarðvegur láta á sjá, biðraðir myndast við afgreiðslur og salerni hafa ekki undan, jafnvel þannig að fólk gerir þarfir sínar í næsta runna. 29. júlí 2015 07:00 Rangt að skólpvatn leki í Þingvallavatn Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir skrif forstöðumanns Náttúruminjastofnunar Íslands, þar sem hann segir frárennslismál í þjóðgarðinum í ólagi, þvætting. Ekkert skólpvatn leki út í Þingvallavatn, allt frárennsli sé keyrt í burtu úr garðinum. 30. júlí 2015 08:00 Gestir Þingvalla kasti af sér vatni fyrir komu Forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands varar við álagi á Þingvelli vegna aukins ferðamannafjölda þar sem fráveita skólps er ekki viðundandi. Hann leggur til að gestir verði beðnir um að létta á sér fyrir komu í þjóðgarðinn. 29. júlí 2015 07:00 Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Þingvallavatn – viðkvæmur viðtaki Fjörleg umræða hefur staðið yfir að undanförnu um erlenda ferðamenn og álag af þeirra völdum á náttúru, menn og mannvirki. Gróður og jarðvegur láta á sjá, biðraðir myndast við afgreiðslur og salerni hafa ekki undan, jafnvel þannig að fólk gerir þarfir sínar í næsta runna. 29. júlí 2015 07:00
Rangt að skólpvatn leki í Þingvallavatn Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir skrif forstöðumanns Náttúruminjastofnunar Íslands, þar sem hann segir frárennslismál í þjóðgarðinum í ólagi, þvætting. Ekkert skólpvatn leki út í Þingvallavatn, allt frárennsli sé keyrt í burtu úr garðinum. 30. júlí 2015 08:00
Gestir Þingvalla kasti af sér vatni fyrir komu Forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands varar við álagi á Þingvelli vegna aukins ferðamannafjölda þar sem fráveita skólps er ekki viðundandi. Hann leggur til að gestir verði beðnir um að létta á sér fyrir komu í þjóðgarðinn. 29. júlí 2015 07:00