Hæ, ég heiti Elín og er matarfíkill Ólöf Skaftadóttir skrifar 25. júlí 2015 09:00 Elín Guðný í miðjunni, ásamt systrum sínum Kolfinnu Hagalín og Maríu Petu. Fréttablaðið/Stefán
Elín Guðný Hlöðversdóttir er matarfíkill í fráhaldi. Hún leitaði á náðir 12 spora samtaka fyrir matarfíkn sextán ára gömul, þá 120 kíló. „Það er svo mikil skömm í kringum þetta. Þú ert á einhvern hátt öðruvísi. Þú þarft að ferðast um með nesti og vigt og fara eftir öllum reglunum. Vigtin mín er eins og gleraugun hjá öðrum,“ segir Elín Guðný. Elín lifir eftir ströngum reglum 12 spora samtaka, sem taka á matarfíkn. „Ég borða þrjár vigtaðar og mældar máltíðir á dag. Ég borða ekkert á milli mála nema svart kaffi, sykurlaust gos og sykurlaust tyggjó. Ég borða ekki sykur, hveiti, sterkju eða rjóma, ekki kartöflur eða pasta. Ég borða eiginlega allt grænmeti, flesta ávexti og svo kjöt, egg, mjólk og fisk. Ég má til dæmis alveg borða smjör, majónes og beikon. Að halda sig innan þessa ramma heitir fráhald, en ef fólki í samtökunum tekst ekki að halda sig innan rammans er talað um það sem fall.“Alin upp á Hlöllabátum Elín Guðný er alin upp á Hlöllabátum, en segir það engin áhrif hafa haft á þróun matarfíknar. „Mér fannst auðveldara að halda mig í fráhaldi meðan ég var að vinna á Hlöllabátum. Það er engin orsök eða afleiðing að ég sé dóttir Hlölla. Mér fannst ekki hvetjandi að borða þegar ég var inni á Hlöllabátum. Allt sem var í boði þar var leyfilegt fyrir utan brauðið, ofátið hófst frekar þegar ég kom heim.“ Pabbi Elínar stofnaði Hlöllabáta fyrir 29 árum. „Þar unnum við öll fjölskyldan. Þau seldu svo fyrirtækið árið 2012, þegar mamma veiktist. Ég fór í það að eignast börn og svona, en þegar ég var að vinna þar þá var ég byrjuð í þessu sem við köllum að vigta og mæla – en það er að mæla allt nákvæmlega sem maður setur ofan í sig samkvæmt reglum 12 spora samtaka.“Vigta og mæla „Fyrst voru þetta bara nokkrir matarfíklar sem ég þekkti sem komu og fengu sér að borða hjá mér. En mig langaði alltaf að gera meira úr þessu, stofna veitingastað þar sem það er ekkert feimnismál að fá matinn sinn vigtaðan og mældan.“ Elín Guðný og fjölskylda hennar létu drauminn rætast á dögunum, og stofnuðu veitingastaðinn Juniorinn í Kópavogi. „Við lögðum mikið upp úr því að veitingastaðurinn væri fyrir alla, ekki bara þá sem vigta og mæla. Þannig að það sé hægt að koma með fjölskylduna eða vini án þess að allir séu endilega í svoleiðis prógrammi.“Fór á fund fyrir matarfíkla 16 ára Elín kynntist 12 spora samtökum fyrir ofætur 16 ára gömul, en hafði þá glímt við matarfíkn síðan hún mundi eftir sér. Hún var 120 kíló. „Ég var lítil og feimin þegar ég gekk inn á fyrsta fundinn. Ég hef alltaf verið feit og alltaf fundist gott að borða. Ég var ein af þeim sem voru alltaf á leiðinni í megrun. Ég var ekkert rúllandi feitt barn, en ég var alltaf aðeins of þung. Svo var ég alltaf að pæla í þessu, alltaf í hausnum á mér: Af hverju borðaði ég þetta? Er ég of feit? Er ég grönn? Hvað á ég að borða? Hvað á ég ekki að borða?“Upplifði sig í fangelsi Hún segir rammann sem hún setur sér sem mælt er með af 12 spora samtökunum aflétta þessari þráhyggju. „Ég ákveð á eftir hvað ég ætla að borða á morgun og þá þarf ég ekkert að pæla meira í því. Þetta hefur hjálpað mér helling og fullt af fólki sem ég þekki. Þegar þú labbar inn á svona fund þá taka þér langflestir opnum örmum. Þetta er á einhvern hátt opið samfélag. Þarna finnur þú samhljóm. Einhvern sem skilur þig.“ Ganga Elínar innan samtakanna hefur ekki alltaf verið jafn auðveld. „Þegar ég kom inn sextán ára gömul var ég auðvitað bara ung og langaði að gera eitthvað annað. Ég upplifði þetta sem hálfgert fangelsi. Ég hef síðan þá verið svona inn og út úr samtökunum, og hef inn á milli náð mjög góðum árangri. En núna er ég inni. Þetta er það sem ég vil, það sem mig langar. Mér líður vel.“Feitir eru annars flokks Elín hefur rokkað mikið í þyngd síðan hún man eftir sér. „Já, tuttugu eða þrjátíu kíló, upp og niður. Ég hef tvisvar náð mér almennilega niður, verið grönn. Þannig að ég hef upplifað að vera feit og að vera grönn og það er tvennt ólíkt. Samfélagið horfir öðruvísi á feitt fólk en á grannt fólk. Ég fer kannski inn í búð, ætla að kaupa mér pils – labba inn og er sagt að það sé ekkert til á fólk eins og mig. Eins og ég sé annars flokks. Maður labbar inn á veitingastað og ætlar að fá sér að borða og það er horft á mann. Ég upplifi það allavega, en ég veit svo sem ekkert hvað fólk er að hugsa. En þetta er öll þjónustan. Maður fer kannski til læknis sem segir manni að grenna sig, en rannsakar ekkert annað. Ég er feit og þá er ég annars flokks.“Aumingjaskapur að vera feitur Elín hefur prófað alla megrunarkúra í bókinni. „Já. Danska kúrinn, Herbalife, ekkert virkar. Eða jú, það virkar, en í takmarkaðan tíma. Það er alltaf þetta sem er bak við. Mig vantar róna. Eitthvað sem virkar fyrir mig. Þegar ég var á þessum kúrum var ég alltaf að bíða eftir einhverju, að missa tíu, fimmtán kíló og þá gæti ég leyft mér að fá mér eitthvað sem ég var að neita mér um. Þetta finn ég ekki þegar ég er að vigta og mæla.“ Hún segir matarfíkn vera eina tegund átröskunar. „Og það er svo mikil skömm í kringum þetta. Það er aumingjaskapur að vera feitur. Þú átt bara að borða minna og hreyfa þig meira. Ég hef hreyft mig heilan helling, en greinilega bara borðað það mikið að ég næ þessu ekki, að borða og brenna jafnóðum.“Sjálfsöryggið lítið sem ekki neitt Hún segir ýmisleg vandamál fylgja matarfíkn. „Þegar maður er á vondum stað kemst maður ekki í fötin sín, manni líður illa með sjálfan sig. Sjálfsöryggið er lítið sem ekki neitt. Þú vilt ekki fara út á meðal fólks því þú ert tuttugu kílóum þyngri en síðast þegar það sá þig. Það finnst mér vont. Ég leyfi þessu ekki að loka mig inni, en þetta er rosalega hamlandi.“Vill ekki vera með hauspoka Elín hefur einnig leitað á náðir Miðstöðvar fyrir matarfíkla. „Þar eru auðvitað fagaðilar sem er gott að hafa með. En samtökin hafa breytt mér og mínu lífi. Alveg klárlega. Það er alltaf eitthvað nýtt, nýi kúrinn. Það verður niðurrif í því að lofa sér einhverju og standa ekki við það. Í stað þess að vera ánægður með sig í deginum í dag, sama hvað þú ert að gera. Það er dálítið það sem ég hef tekið út úr minni 12 spora vinnu. Og maður á ekki að þurfa að mæta með hauspoka til að ræða matarfíkn eða glíma við hana. Það er bara fáránlegt. Ég vil opna á þetta og ræða þetta opinskátt.“
Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Sjá meira