Félagasamtök vinni heimavinnuna sína Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 21. júlí 2015 06:00 Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir að fyrirtæki, flokkar og félagasamtök geti enn dreift boðskap sínum ef farið er eftir reglum. VÍSIR/VALLI „
Það er að fjölga mikið þessum kærum, alveg verulega,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar. Þann 25. júní síðastliðinn úrskurðaði Póst- og Fjarskiptastofnun um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði brotið fjarskiptalög með sms-sendingum og símtali til félagsmanns í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á kjördag 2014. Félagsmaðurinn taldi sig ekki hafa veitt samþykki sitt fyrir að taka á móti sendingum af þessu tagi. „Við birtum þarna fjórar eða fimm ákvarðanir í einu,“ segir Hrafnkell.Hrafnkell V. Gíslason„Ég held að þetta sé tákn um það að þetta sé að aukast. Almenningur er að verða meðvitaðri um rétt sinn gagnvart friðhelgi einkalífsins annars vegar og hins vegar er núna heilmikið um það að fyrirtæki og félagasamtök séu að nota þessar rafrænu leiðir til að hafa samband við þá sem þeir vilja ná athygli frá og þetta mætist svolítið í þessari aukningu.“ Hrafnkell segir að með þessum úrskurðum sé ekki verið að banna það að fyrirtæki eða félagasamtök komi boðskap sínum á framfæri. „Og eins og til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn, ef hann myndi vinna ákveðna heimavinnu varðandi félagaskrána, þá getur hann notað þessar leiðir en þá verður það að vera þannig að það sé upplýst samþykki. Það er ekki verið að banna leiðina, það er verið að hnykkja á því hvaða verklag menn hafa í þessu.“ Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir að úrskurður af þessum toga setji frjálsum félagasamtökum í landinu nokkrar skorður. „Það er ekki ólíklegt að við kærum. Við teljum að [ákvörðunin] muni hafa alvarlegar afleiðingar fyrir öll frjáls félagasamtök í landinu,“ segir Þórður. „Þetta snýst náttúrulega engan veginn um Sjálfstæðisflokkinn, þetta snýst um hvernig flokkar og öll frjáls félagasamtök í landinu hafa nálgast félagsmenn sína. Það allt saman er undir. Það er mjög ólíklegt að við munum láta það liggja í lausu lofti þannig að það er auðvitað langlíklegast að við munum kæra þennan úrskurð,“ segir hann. „Það er talsvert ólíku saman að jafna, samskiptum frjálsra félagasamtaka við félagsmenn sína og það hvernig menn fara í blindar hringingar eftir símaskrá.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira