Skolp rennur út í sjó Sveinn Arnarsson skrifar 14. júlí 2015 09:15 Langan tíma gæti tekið að ná tökum á saurgerlamengun í Eyjafirði, að mati Norðurorku. vísir/pjetur
Mörg ár gæti tekið að laga fráveitukerfi Akureyringa svo mengun af völdum saurgerla haldist innan viðmiðunarmarka í sjó við strendur bæjarins. Nýleg sýnataka heilbrigðiseftirlitsins sýndi of háan styrk saurkólígerla og er það í þriðja sinn sem styrkurinn er yfir viðmiðunarmörkum. Sýni sem tekin voru fyrir helgi sýna að magn saurgerla er innan viðmiðunarmarka við Pollinn á Akureyri en styrkurinn mældist tífalt yfir mörkum norðan byggðarinnar. Í júní mældust mest 79.000 saurgerlar í 100 millilítrum af sjó en viðmiðið er 100 saurgerlar í því magni af sjó.BAldur DýrfjörðBaldur Dýrfjörð, upplýsingafulltrúi Norðurorku sem heldur utan um fráveitukerfi á Akureyri, segir lagfæringar á kerfinu geta tekið nokkur ár. Kerfið sé tvöfalt eins og víðast hvar annars staðar í stærri bæjarfélögum. „Einhvers staðar er svokölluð slysatenging, sem lýsir sér í því að pípulögnum frá húsum bæjarins er víxlað í fráveituna og því fer skolp með yfirborðsvatni og á greiða leið í sjó fram,“ segir Baldur. Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, segir það geta tekið nokkur ár að komast að því hvar gloppur eru í kerfinu og laga mögulegar slysatengingar. Norðurorka vinnur nú að því að komast til botns í því hvar þessar slysatengingar eru. „Eins og gefur að skilja gæti þetta tekið langan tíma. Það tók til dæmis nokkur ár að komast til botns í svipuðu vandamáli við Fossvoginn á höfuðborgarsvæðinu. Við höfum á síðustu áratugum unnið gott starf í að koma skólpmálum bæjarins í gott horf og munum halda þeirri vinnu áfram,“ segir Baldur.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira