Tónlist

Stærsta Eistnaflugið hingað til

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Tónleikarnir fara fram í íþróttahúsinu, sem rúmar í það minnsta 1.500 manns, líklega talsvert fleiri. Egilsbúð gat aðeins tekið á móti um 1.000 gestum.
Tónleikarnir fara fram í íþróttahúsinu, sem rúmar í það minnsta 1.500 manns, líklega talsvert fleiri. Egilsbúð gat aðeins tekið á móti um 1.000 gestum. mynd/Guðný Lára Thorarensen
„Þetta er algjörlega nýtt Eistnaflug, við erum búnir að setja saman flottasta Eistnaflugið hingað til, það er alveg klárt,“ segir Stefán Magnússon, forsprakki tónlistarhátíðarinnar Eistnaflug. Hátíðin hefst í dag í Neskaupstað og stendur til 11. júlí.

Eistnaflug hefur hingað til farið fram í félagsheimili kaupstaðarins, Egilsbúð, en í ár fer hún fram í íþróttahúsi kaupstaðarins. „Þetta verður allt miklu stærra og flottara. Það er um tvö til þrjú hundruð manna aukning á milli ára hjá okkur. Nú þegar hafa yfir 500 útlendingar meldað sig, sem er um 40 prósenta aukning á útlendingum á milli ára,“ segir Stefán.

Íþróttahúsið rúmar í það minnsta 1.500 manns, líklega talsvert fleiri, en Egilsbúð gat aðeins tekið á móti um 1.000 gestum.

Það vakti athygli að hátíðin fékk ekki styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands og var Stefán augljóslega ekki sáttur við það. „Ég er búinn að velta þessu fyrir mér í nokkra daga og reyna að skilja þessa ákvörðun. Er það þessi straumur af fólki sem kemur austur þegar Eistnaflug er sem veldur þessu, en við reiknum með að minnsta kosti 2.000 manns á Eistnafluginu í sumar? Nú þegar eru um 500 erlendir gestir búnir að bóka sig og eru þeir að koma austur að skoða allt sem er í boði. Ég er að fá um 60 ljósmyndara og blaðamenn á Eistnaflug sem fjalla um Austfirði, land og þjóð og jú Eistnaflug. Eistnaflug eykur sölu í verslunum um milljón prósent þessa fimm daga í Fjarðabyggð og það ætti að skipta máli þegar við skoðum hversu margir fá vinnu út af Eistnaflugi. Öll hótel eru uppbókuð og ekki bara í Neskaupstað heldur eru gestir Eistnaflugs farnir að bóka sig á Eskifjörð og Reyðarfjörð líka. Það sem ég er að benda á hér er það að það er enginn menningarviðburður á Austurlandi sem hefur önnur eins áhrif á Austurland og Eistnaflug,“ skrifaði Stefán á Facebook-síðu sína þegar hann fékk þessar fregnir.

Stefán Magnússon Forsprakki Eistnaflugs.vísir/daníel
Alcoa Fjarðaál veitti þó skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Eistnaflugs á Neskaupstað hæsta einstaka styrkinn við árlega vorúthlutun Samfélagssjóðs Alcoa Fjarðaáls eða eina milljón króna.

„Ég reikna aldrei með neinum styrkjum og sæki bara um. Þetta snýst bara um að hátíðin gangi vel og allir fari af henni brosandi. Við viljum lenda hátíðinni réttu megin við núllið og því skiptir það máli að fá styrki. Undanfarin ár höfum við komið út réttum megin við núllið, málið snýst um það. Það eru sjálfboðaliðar sem vinna að hátíðinni í heilt ár. Fólk sér bara Neskaupstað fullan af fólki en það er rosalegur kostnaður og vinna að baki svona hátíð sem fólk áttar sig stundum ekki á.“

Fjöldi þekktra hljómsveita kemur fram í ár. Skálmöld, Sólstafir, Ham, Agent Fresco og Brain Police eru á meðal þeirra sveita sem fram koma.

Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem Kiddi Rokk, hlaut Grjótið.vísir/gva
Kiddi rokk fékk heiðursviðurkenninguna í ár

Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem Kiddi Rokk, fékk á dögunum afhenta heiðursviðurkenningu Eistnaflugs sem kallast Grjótið. „Ég er ferlega stoltur af þessu, sérstaklega því maður fær þetta frá fólkinu í bransanum. Það er gaman að fá klapp á bakið frá bransafólkinu,“ segir Kiddi alsæll með viðurkenninguna.

Hann hefur verið í bransanum í um 25 ár og lengst af starfað fyrir Smekkleysu. Honum var komið á óvart þegar hann var boðaður í viðtal á Rás 2. „Ég var kallaður í viðtal til að ræða tónlistarmarkaðinn. Í miðju viðtali segja þeir að þeir hafi ekki verið að biðja mig um að koma í viðtal heldur vildu þeir bara koma mér á óvart,“ segir Kiddi léttur í lundu.

„Kiddi er bara algjör perla, þessi einlægni og áhugi hjá honum að bera orðspor rokktónlistar á borð fyrir alla er svo fallegt. Það er alveg sama hvernig staðan er með rokk og ról, hann heldur alltaf áfram,“ segir Stefán um Kidda. Sex manna nefnd skipuð fólki úr bransanum velur heiðursverðlaunahafann. Í fyrra fékk Sigvaldi Jónsson, betur þekktur sem Valli Dordingull, viðurkenninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×