Lögleg lyf í þeim sem deyja vegna eitrana Svavar Hávarðsson skrifar 28. maí 2015 08:45 Fólk er eindregið hvatt til að láta ekki lyf liggja á glámbekk. Vísir/Hari „
Krakkarnir sem eru í neyslu þekkja þetta allir. Við erum að sjá mikið af þessum lyfjum í umferð,“ segir Funi Sigurðsson, forstöðumaður á Stuðlum – meðferðarheimili fyrir unglinga, um lögleg lyf sem misnotuð eru af börnum og unglingum. Svo algengt er að þessi hópur komist yfir ávísuð lyf og misnoti þau að forsvarsmenn á Stuðlum sáu ástæðu til að senda Embætti landlæknis sérstaka ábendingu þar um nýlega. Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis, en embættið hefur eftirlit með ávísunum ávanabindandi lyfja, tekur undir hversu alvarleg staðan er. Stærsta áhyggjuefni embættisins þessa dagana séu sterk verkjalyf sem skapa mikla hættu fyrir einstaklinga með alvarlega fíkn. „Bæði hefur magn ávísaðra verkjalyfja aukist hér á landi og svo erum við að sjá þessi lyf í sýnum einstaklinga sem látist hafa vegna eitrana. Það er sorglegt þegar ungir einstaklingar leiðast út í svona hættulega misnotkun með skelfilegum afleiðingum. Þetta er umhugsunarvert þegar orsök dauðsfalla eru lögleg lyf sem þeir komast í með ýmsum hætti,“ segir Ólafur en bætir jafnframt við að það sé ekki einfalt að finna uppsprettu lyfjanna og þar togist á raunveruleg veikindi fólks og misnotkun á kerfinu hjá fólki sem gerir sér upp veikindi. Funi segir að upplýsingagjöf varðandi börn og unglinga verði að bæta; ekki síst til foreldra. „Ég held að lyfin séu mest að koma frá krökkum til krakka. Lyfjum er stolið í heimahúsum þar sem þau liggja á glámbekk, þótt allur gangur sé á því hvernig þau komast yfir þau. Dæmi er líka um að krakkarnir eru að selja lyfin sín á milli. Þetta sést greinilega á síðum, t.d. á Facebook, þar sem verið er að höndla með þessi lyf og þeim er haldið úti af ungu fólki,“ segir Funi. Hann bætir við að ímynd þessara lyfja sé að þau séu á einhvern hátt hreinni – enda framleidd hjá viðurkenndum lyfjafyrirtækjum. Mikið ber á lyfjum eins og rítalíni og concerta, sem notuð eru til að meðhöndla einkenni ADHD, en aðgengið að þeim lyfjum er mest. Fleiri lyfjaflokka er þó um að ræða. „Þau telja sér trú um það að þetta sé skárra, en þessi lyf fara jafn illa eða verr með þau,“ segir Funi
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira