Íslendingar endurgreiða Pólverjum 7 milljarða Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2015 07:00 Eftir blaðamannafund skoðaði pólski fjármálaráðherrann sig um á Íslandi. vísir/gva „
Við erum minnug þess að við höfum sjálf oft fengið aðstoð í fortíðinni,“ sagði Mateusz Szczurek, fjármálaráðherra Póllands, á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. Tilefni fundarins var að Íslendingar hafa ákveðið að endurgreiða fyrir fram lán sem Íslendingar fengu frá Póllandi árið 2009. Lánið var veitt þegar neyð Íslendinga var sem mest eftir bankahrunið og helstu vinaríki, utan Póllands og Færeyja, voru ekki reiðubúin til að veita Íslandi gjaldeyrisforðalán. Endurgreiðslan nemur 204 milljónum slota, jafnvirði um 7,3 milljarða króna. Lánsloforð Pólverja var upp á 630 milljónir slota og þar af nýtti Ísland um þriðjung. Lánið var á gjalddaga á árunum 2015-2022. „Það er alltaf verðugt og ánægjulegt að taka þátt í vel heppnuðum verkefnum og við erum ánægð að Íslandi hefur gengið mjög vel að ná bata eftir fjármálakreppuna og þetta vitum við þegar við berum Ísland saman við mörg önnur ríki í Evrópu,“ sagði Szczurek. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að það væri án alls vafa að stuðningur, örlæti og vinátta Pólverja árið 2009, á tímum mikilla erfiðleika, hefði styrkt tengsl þjóðanna. „Ég vísa í ráðherrann sjálfan þegar ég segi að fyrirframgreiðsla á láninu eru ekki endalok á neinu heldur áfangi á langri vináttu,“ sagði hann. Bjarni sagðist vonast til þess að í þessari heimsókn myndu Pólverjar finna nýjan vettvang til samstarfs, til dæmis á sviði tölfræði eða í tæknimálum. „Þetta hefur því verið mjög skýrt merki um vilja Pólverja til þess að halda áfram að eiga mikil og góð samskipti eins og við höfum átt í gegnum tíðina,“ sagði Bjarni.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira