Akureyri leggst gegn nýju umhverfismati 23. maí 2015 12:00 Tjörnes Bakki við Húsavík þar sem kísilmálmverksmiðja PCC á að rísa.FRéttablaðið/Pjetur
OrkumálBæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar segir kröfu Landverndar um nýtt umhverfismat fyrir raflínur Landsnets frá Þeistareykjum við Kröflu að Bakka á Húsavík til þess fallna að valda samfélaginu í Norðurþingi skaða. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir öruggt að kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka þurfi 58 megavött af raforku. Það sé um tífalt minni raforkuþörf en þegar álvershugmyndir voru uppi á svæðinu. „Það er í raun sérkennilegt að saka okkur um að gera eitthvað rangt í þessum efnum. Sveitarfélögin hefðu átt að sjá sóma sinn og hag í því að sækja um nýtt umhverfismat á sínum tíma þegar vitað var að álver myndi ekki rísa á svæðinu,“ segir Guðmundur. „Ég vísa því alfarið ábyrgðinni yfir á sveitarfélögin.“ Bæjarstjórn Akureyrar segir Landvernd koma allt of seint með málið nú þegar framkvæmdir séu við það að hefjast við fyrsta áfanga verksmiðju PCC. Það umhverfismat sem liggur nú fyrir er frá árinu 2010 og miðast við mun stærri framkvæmdir en nú er stefnt að í fyrsta áfanga. „Hafa ber einnig í huga að uppbygging raflínunnar er mikilvægur liður í að styrkja flutningskerfi raforku á Norðausturlandi. Krafa Landverndar um nýtt umhverfismat er því til þess fallin að valda samfélaginu í Norðurþingi og nágrannabyggðum skaða,“ segir í bókun sem var samþykkt með tíu atkvæðum í bæjarstjórn. Fulltrúi VG sat hjá. Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar, segir það skipta miklu máli að uppbygging geti hafist í Norðurþingi. „Sterk nágrannasveitarfélög skipta Akureyri miklu máli og þar er Norðurþing ekki undanskilið. Atvinnuuppbygging á Bakka hefur jákvæð áhrif á byggðaþróun á öllu svæðinu og þess vegna vildum við láta í okkur heyra,“ segir Logi Már Einarsson.sveinn@frettabladid.is
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira